Rúmur þriðjungur hefur íhugað sjálfsvíg 10. mars 2012 14:00 313 ný mál komu til kasta Stígamóta í fyrra. Rúmur þriðjungur fórnarlamba hafði hugleitt sjálfsvíg. fréttablaðið/vilhelm
Rúmur þriðjungur þeirra sem leituðu sér hjálpar á Stígamótum í fyrra vegna kynferðisofbeldis höfðu verið í sjálfsvígshugleiðingum. Sextán prósent, eða 45 einstaklingar, höfðu gert eina eða fleiri tilraunir til sjálfsvíga. Þetta kemur fram í ársskýrslu Stígamóta. „Við vitum auðvitað að sjálfsvígshugleiðingar eru þekktar almennt í samfélaginu en ég er alveg viss um að það er ekki þannig að meira en einn þriðji Íslendinga er að gæla við sjálfsvíg,“ segir Guðrún Jónsdóttir talskona Stígamóta. Algengustu afleiðingar kynferðisofbeldis eru léleg sjálfsmynd, kvíði, skömm, depurð og sektarkennd samkvæmt fólki sem kom í viðtöl á Stígamót í fyrra. Yfir sjötíu prósent viðmælenda upplifðu þessar tilfinningar. Flestir, eða 78,8 prósent höfðu upplifað lélega sjálfsmynd og kvíða og 77 prósent upplifðu skömm. Tæplega sjötíu prósent höfðu upplifað svipmyndir, sem eru myndir eða minningar tengdar kynferðisofbeldinu sem skjóta skyndilega upp kollinum og valda hugarangri. Þá eru reiði, erfið tengsl við maka eða vini, ótti og tilfinningalegur doði meðal algengra afleiðinga. „Okkar fólk er að dröslast í gegnum lífið með skömm og sektarkennd yfir mannréttindabrotum sem einhverjir aðrir frömdu á þeim. Það er eitthvað öskrandi rangt við það,“ segir Guðrún. „Þetta eru ansi langlífar ranghugmyndir sem við erum að eyða miklu púðri í að breyta vegna þess að það eru enn svo ríkjandi fordómar um það fólk sem er beitt ofbeldi og vegna þess að ábyrðin á ofbeldinu er ekki sett þar sem hún á heima, nefnilega hjá þeim sem beita ofbeldi.“ Tæp fjörutíu prósent þeirra sem leituðu til Stígamóta, eða 109 einstaklingar, höfðu ekki rætt ofbeldið við neinn fagaðila áður. 27 prósent höfðu rætt við sálfræðing, sextán prósent við lækni og þrettán prósent geðlækni. Flestir höfðu þó sagt einhverjum frá ofbeldinu áður en leitað var til Stígamóta. Algengast er að vini eða vinkonu hafi verið sagt frá ofbeldinu, en í 180 skipti hafði vini verið sagt frá því. 130 höfðu sagt maka frá, 127 sögðu móður frá og 121 hafði sagt fagaðila frá ofbeldinu. thorunn@frettabladid.is
Mest lesið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Erlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Innlent Fleiri fréttir Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Sjá meira