Frumvarp um barnalög gamaldags 11. febrúar 2012 07:00 Ráðstefna um foreldrajafnrétti Anja Cordes, danskur lögfræðingur, segir það rétt barnsins að annað foreldrið geti ekki sparkað hinu út í kuldann. fréttablaðið/gva
Anja Cordes, lögfræðingur á sviði fjölskylduréttar í Danmörku, segir í viðtali við Fréttablaðið að frumvarp Ögmundar Jónassonar innanríkisráðherra um breytingar á barnalögum sé úr takti við tímann. „Það er réttur barnsins að annað foreldrið geti ekki sparkað hinu út í kuldann.“ Samkvæmt frumvarpinu á ekki að heimila dómurum að skera úr um sameiginlega forsjá foreldra með barni með dómi. Ráðherrann hefur lýst því yfir að hann hafi tekið þessa leið út úr frumvarpinu með hliðsjón af því sem hann hefur talið vera slæma reynslu hjá öðrum norrænum ríkjum. Hefur hann meðal annars vísað í danska rannsókn. Það er mat innanríkisráðherra að betra sé fyrir barn að reynt sé að ná samkomulagi og sátt í stað þess að lögmenn beggja aðila reyni að sýna fram á vankanta hins foreldrisins frammi fyrir dómara. Cordes flutti í gær erindi á ráðstefnu Félags um foreldrajafnrétti sem haldin var vegna breytinga á barnalögunum. Hún segir viðamikla vísindalega rannsókn í Danmörku hafa leitt í ljós að samvinna foreldra verði ekki betri vegna sameiginlegrar forsjár. „En það hefur verið hægt að sjá hverjir geta unnið saman og hverjir ekki. Þeir sem geta ekki unnið saman eru ekki festir í sameiginlega forsjá. Það hefur bara verið í helmingi tilfellanna sem komið hafa til dómstóla sem dæmd hefur verið sameiginleg forsjá. Ég er ekki hrædd um að dómarar sjái ekki hverjir geta ekki unnið saman. Mín reynsla er jafnframt sú að það sé jákvætt að annað foreldrið geti ekki verið visst um að það fái eitt forsjá með barninu. Þetta hefur opnað augu sumra foreldra fyrir því að barnið er á ábyrgð þeirra beggja. Mér finnst hafa orðið breyting á viðhorfi fólks til sameiginlegrar forsjár.“ Að sögn lögfræðingsins var nú í vikunni gerð breyting á barnalögunum frá 2007 í Danmörku. „Dómarar geta enn fyrirskipað sameiginlega forsjá. Hingað til hefur verið erfitt að binda enda á slíkt fyrirkomulag. Ástæðurnar þurftu að vera alvarlegar. Samkvæmt breytingunni þarf nú hitt foreldrið sem er andvígt að bundinn sé endi á úrskurðaða sameiginlega forsjá að geta sýnt fram á að samvinnan hafi áður verið góð, að barnið hafi það gott og að gott samband sé á milli heimilanna. Það getur nefnilega verið að foreldri vilji binda enda á sameiginlega forsjá af öðrum ástæðum en vegna velferðar barnsins. Ástæðan getur verið nýr kærasti eða rifrildi um fjármál svo dæmi sé tekið. Mér finnst breytingin til góðs. Það er betra að þurfa að sýna fram á jákvæð atriði en neikvæð.“ibs@frettabladid.is
Mest lesið Gleði Verzlinga fór úr böndunum og þeim ekki boðið aftur Innlent Skilin eftir vegna yfirbókaðs flugs: „Þú setur ekki sautján ára ungling á standby“ Innlent Erfingi sem á tugi milljóna í stórútgerðinni: „Lífið er miklu meira en peningar“ Innlent Móðan gæti orðið langvinn Innlent Hrósar Verzlingum fyrir „vel skipulagða“ útilegu Innlent Öryggisvörður stunginn í brjóstið í Hlíðunum Innlent Framúrskarandi Íslendingur loksins orðinn Íslendingur Innlent Grunaður um að nauðga konu sem svaf í gestaherbergi Innlent Sungu svo falskt að lögreglan var kölluð til Innlent Flóðbylgjuhætta eftir stærðarinnar skjálfta í Rússlandi Erlent Fleiri fréttir Kviknaði í haug af timburkurli „Þetta er ekki eiturgas“ Glæsilegt útilistaverk hjá Hrafnistu við Sléttuveg í Fossvogi Erfingi sem á tugi milljóna í stórútgerðinni: „Lífið er miklu meira en peningar“ Ketamínneysla, Akureyrarborg og bananalistaverk borðað Drúsar mótmæla við sendiráðið Öryggisvörður stunginn í brjóstið í Hlíðunum Fjórir kettir týndust í brunanum Framúrskarandi Íslendingur loksins orðinn Íslendingur Einn í gæsluvarðhald vegna hnífstunguárásar Hrósar Verzlingum fyrir „vel skipulagða“ útilegu Grunaður um að nauðga konu sem svaf í gestaherbergi Skilin eftir vegna yfirbókaðs flugs: „Þú setur ekki sautján ára ungling á standby“ Vísar gagnrýni stjórnarandstöðunnar á bug Körfubolta og frjálsíþróttalöggur á Norðurlandi vestra Gleði Verzlinga fór úr böndunum og þeim ekki boðið aftur Einn fluttur á slysadeild eftir að eldur kviknaði við Tryggvagötu Tekist á um brostin loforð ríkisstjórnarinnar Sungu svo falskt að lögreglan var kölluð til Móðan gæti orðið langvinn Skjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu Framdi vopnað rán og leikur lausum hala í Reykjavík Gosmóðan liggur þétt yfir höfuðborgarsvæðinu og viðkvæmir hvattir til að vara sig 135 þúsund kjúklingar á Ásmundarstöðum í Ásahreppi „Langstærstu vandamálin eru þessir stærri og skipulögðu þjófnaðir“ „Umsókn Íslands að Evrópusambandinu hefur aldrei verið formlega dregin til baka“ Hornfirskur miði vann rúmar níu milljónir „Nýta þetta kjörtímabil til að troða Íslandi inn í ESB með sem mestum blekkingum“ Leikrit ríkisstjórnarinnar og hnífamaður flúði í strætó Hnífstunga á Austurvelli Sjá meira