Innlent

Kyrrsetningin stenst skoðun

Jón Ásgeir Jóhannesson
Jón Ásgeir Jóhannesson
Eignir athafnamannsins Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og Lárusar Welding, fyrrverandi forstjóra Glitnis, hér á landi verða áfram kyrrsettar að kröfu slitastjórnar bankans. Hæstiréttur kvað upp úr með það í gær að kyrrsetningin stæðist lög þrátt fyrir mótmæli tvímenninganna sem hafa í hálft annað ár reynt að fá henni hnekkt.

Eignirnar voru kyrrsettar vegna sex milljarða króna skaðabótamáls sem kennt er við fasteignakeðjuna Aurum. Um er að ræða fasteignir, bíla, bankainnstæður og hlutabréf. Andvirði kyrrsettra eigna Jóns Ásgeirs var þá metið á um 197 milljónir og Lárusar um 70 milljónir. - sh




Fleiri fréttir

Sjá meira


×