Innlent

Tæpt að kjósa í einu um forseta og stjórnarskrá

Jóhanna Sigurðardóttir segir að ef hún mætti ráða ferlinu yrði ný stjórnarskrá tilbúin fyrir lok kjörtímabils.
Jóhanna Sigurðardóttir segir að ef hún mætti ráða ferlinu yrði ný stjórnarskrá tilbúin fyrir lok kjörtímabils. Fréttablaðið/anton
Mögulega er orðið of seint að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um drög að nýrri stjórnarskrá samhliða forsetakosningum í júní, að mati Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra. Þetta sagði hún á Alþingi í gær.

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, innti Jóhönnu eftir því hvenær hún sæi fyrir sér að slík þjóðaratkvæðagreiðsla færi fram, hvernig að henni ætti að standa og um hvað skyldi greiða atkvæði. Hann kvaðst telja algjörlega óraunhæft að frumvarp að nýrri stjórnarskrá yrði samið upp úr tillögum stjórnlagaráðs á næstu vikum, þannig að unnt yrði að leggja það fyrir þjóðina.

Jóhanna svaraði því til að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd þingsins væri nú með tillögur stjórnlagaráðs til meðferðar og væri að fara yfir umsagnir. Hún vonaðist til að sú vinna gengi hratt og vel og málinu yrði lokið í sátt á næstu vikum. Breyttar tillögur yrðu sendar stjórnlagaráði til lokaumsagnar.

„Og síðan – ef ég mætti ráða ferðinni – yrði útbúin þingsályktunartillaga um að málið færi í þjóðaratkvæðagreiðslu,“ sagði Jóhanna. Hún sæi jafnvel fyrir sér að fólk gæti greitt atkvæði um tillögurnar kaflaskipt og að því loknu kæmu þær í frumvarpsformi inn í þingið. Vonandi tækist að afgreiða það fyrir lok kjörtímabils.- sh




Fleiri fréttir

Sjá meira


×