Verða af hundruðum milljóna króna 13. janúar 2012 06:30 Bent var á það í skipulagsráði Hafnarfjarðar að þeim sem skrá fasteignir sínar á réttu byggingarstigi sé mismunað. Fréttablaðið/Vilhelm „
Ljóst er að Hafnarfjörður hefur orðið af tekjum sem skipta tugum ef ekki hundruðum milljóna vegna þessa,“ bókuðu fulltrúar minnihluta Sjálfstæðisflokks eftir að meirihluti skipulags- og byggingarráðs Hafnarfjarðar ákvað að gera átak í að leiðrétta skráningu fasteigna. Meirihluti Samfylkingar og VG í ráðinu sagði það mikið hagsmunamál fyrir bæjarsjóð og íbúa Hafnarfjarðar að byggingarstig fasteigna væri rétt skráð. Umtalsverður árangur hafi náðst í þessu á undanförnum árum en áhersla yrði lögð á málið á næstu vikum og mánuðum. „Samkvæmt staðfestum upplýsingum fulltrúa Sjálfstæðisflokksins í Skipulags- og byggingarráði hefur verið verulegur misbrestur á réttri skráningu byggingarstigs og þar af leiðandi innheimtu réttra fasteignagjalda af íbúðar-, verslunar- og iðnaðarhúsnæðis undanfarin ár. Eigendum fasteigna í Hafnarfirði sem hafa hirt um að skrá fasteignir sínar og greiða réttmæt gjöld til Hafnarfjarðarbæjar hefur verið stórlega mismunað í innheimtu fasteignagjalda vegna þessa,“ bókuðu sjálfstæðismenn. Þeir lögðu til rannsókn á ástæðu þess að skráningin hafi misfarist og úttekt á tekjutapi Hafnarfjarðar vegna þess. - gar
Mest lesið Þau kvöddu á árinu 2025 Erlent Hitinn fór í 19,8 stig og desembermetið slegið Veður Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Innlent Seinfeld og Friends-leikari látinn Erlent Fundu yfir milljón skjöl sem tengjast Epstein Erlent Fimm fórust í þyrluslysi á Kilimanjaro Erlent Hvar er opið á aðfangadag? Innlent Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Innlent Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Innlent Arion banki varar við svikaherferð Innlent Fleiri fréttir Engin jólamessa vegna rafmagnsleysis Klæðning fauk af Stjórnsýsluhúsinu og skemmdi bíla Gleðileg jól, kæru lesendur Einn fluttur á sjúkrahús eftir bílslys Skiluðu hagnaði á kosningaári Hátíðarveisla á kaffistofu Samhjálpar: „Það er ró og friður yfir fólki“ Björgunarsveitin kölluð út í fokverkefni Grjóthrun undir Eyjafjöllum Fátækari eftir að hafa svindlað á ferðakonum Arion banki varar við svikaherferð Innanlandsflugi aflýst Foreldrar skipverjans fá áheyrn í Hæstarétti Hvar er opið á aðfangadag? Innflytjendamálin almenningi efst í huga Bæta við allt að 200 íbúðum og mathöll í Spöngina Maður í umferðarslysi reyndist fíkniefnasali Minni rekstrarkostnaður fyrir eigendur bensínháka Hafnar „jólakveðju“ ríkisins Hefði þurft hjólbörur undir öll verðlaunin sín Ýmis ráð til taugatrekktra á Þorláksmessu Ekkert því til fyrirstöðu að Ásthildur Lóa verði aftur ráðherra Óvissa um ráðherraskipan og skata fyrir byrjendur Maðurinn fundinn Sigríður Halldórsdóttir nýr ritstjóri Kastljóss Íslendingur í gæsluvarðhaldi í Kólumbíu vegna gruns um kynferðisbrot Forsætisráðuneytið eyddi meiru í almannatengla í fyrra en í ár Inkalla snuð vegna of mikils magns BPA-plastefna Svanhildur Sif heiðruð Falskar netverslanir: Auglýsir rýmingarsölu nokkrum dögum eftir opnun Meðallaun upplýsingafulltrúa hækkuðu hlutfallslega mest Sjá meira