Þyngja refsingar við vopnaburði 11. janúar 2012 09:30 Ögmundur Jónasson
Þynging refsinga við ólöglegum vopnaburði, aukin fjárframlög til lögreglu og aukin samvinna stjórnvalda við íslensk og alþjóðleg lögregluyfirvöld eru kostir sem Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra sér í stöðunni eftir að nýtt hættumat greiningardeildar ríkislögreglustjóra var gert opinbert. Þar er dregin upp svört mynd af glæpastarfsemi hér, þar sem um er að ræða skipulagða starfsemi bæði innlendra og erlendra glæpahópa. Innanríkisráðherra lagði nýja hættumatið fram á fundi ríkisstjórnarinnar í gær. „Ég vakti athygli á því að við fengum sérstaka fjárveitingu á síðasta ári til að efla forvarnir og baráttu gegn skipulagðri glæpastarfsemi. Við teljum að þeir fjármunir hafi komið að góðum notum og erum með frekari tillögur í þeim efnum til skoðunar núna,“ segir ráðherra. „Þá er horft til breytinga á vopnalögum, eftir að í ljós kemur að aukin brögð eru að því að menn beri skotvopn. Ég mun eftir um það bil hálfan mánuð leggja frumvarp fyrir ríkisstjórnina um breytingu á umræddum lögum sem felur meðal annars í sér bann við eign og vörslu á hálfsjálfvirkum skotvopnum. Brot á slíku banni varði allt að átta ára fangelsi í stað sex eins og nú er,“ útskýrir ráðherra, sem segir vopnaburð lögreglu ekki kost að sínu skapi og hugnist lögreglu heldur ekki almennt. Hann segir enn fremur að lögð verði áhersla á aukið samstarf við alþjóðlega löggæslu. Í næstu viku komi að frumkvæði ráðuneytisins fulltrúar frá Evrópulögreglunni til viðræðna, auk þess sem viðræður séu hafnar um að efla enn frekar samstarf innanríkisráðuneytisins og Alþingis um málefni löggæslunnar og hafi formaður allsherjarnefndar, Björgvin G. Sigurðsson, lýst vilja í þá veru. - jss
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Innlent Fleiri fréttir Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Sjá meira