Nýársnótt hjá lögreglu 1. janúar 2012 15:55
Líkamsárás, lausaganga hrossa og ölvunarakstur var á meðal þess sem kom inn á borð lögreglu þessa fyrstu nótt ársins. Maður um tvítugt var fluttur á sjúkrahús eftir líkamsárás sem átti sér stað á Gíslagötu við Ráðhúsið á Akureyri um fimmleytið í nótt. Karlmaður veitti unga manninum kjaftshögg með þeim afleiðingum að hann kjálkabrotnaði og þarf að gangast undir aðgerð. Árásarmaðurinn er ekki í haldi lögreglu þar sem hann var farinn af vettvangi þegar hana bar að. Hann er þó þekktur og verður yfirheyrður þegar til hans næst. Lögreglan á Suðurnesjum fékk í nótt tilkynningu um laus hross á Reykjanesbrautinni en þrátt fyrir talsverða leit fundust þau ekki fyrr en í morgun við Hvassahraun. Erfiðlega gekk að finna eigandann en eftir nokkur símtöl fannst hann þó á endanum og sótti skepnurnar sem voru átta talsins. Talið er að sprengingar næturinnar hafi fælt hrossin en líkt og margir vita hræðast dýr glampana og ekki síst drunurnar frá þeim. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu fékk í morgun tillkynningu um tvo menn sem höfðu úðað á fólk, að öllum líkindum með piparúða. Mennirnir úðuðu á karlmann og konu á Lækjartorgi eftir einhver orðaskipti og voru þau flutt á slysadeild. Tilkynnt var um húsbrot og skemmdarverk í Kvennaskólanum klukkan hálf sjö í morgun. Nokkru seinna voru tveir menn handteknir við Landsspítalnn grunaðir um verknaðinn. Annar mannanna var skorinn á hendi og var honum komið undir læknishendur á slysadeild. Hinn var vistaður í fangageymslu en sá slasaði mun að lokinni aðhlynningu fara sömu leið. Þá voru tveir ökumenn teknir grunaður um ölvun við akstur á Selfossi í nótt en að öðru leyti var nóttin tíðindalaus hjá lögreglu.
Mest lesið Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Innlent Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent „Þetta er erfiður mánudagur“ Innlent Fleiri fréttir Óvarfærið orðalag geti orðið til vandræða í áratugi Kristrún hafi staðið sig best en Inga verst Þögul sem gröfin um meintan trúnaðarbrest Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Deilt um orðalag á kjörseðli, trúnaðarbrestur og vinsældir ráðherra Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Miðflokkurinn úr leik í Árborg Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi „Þetta er erfiður mánudagur“ Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Sjá meira