Erlent

Söng Bohemian Rhapsody í baksæti lögreglubíls

Ofurölvaður maður söng fullkomna útgáfu af meistaraverkinu Bohemian Rhapsody í baksæti lögreglubíls.

Atvikið átti sér stað í nóvember á síðasta ári. Myndbandið birtist á vefsíðunni YouTube fyrr í vikunni og hefur verið horft á það tæplega 100.000 sinnum.

Maðurinn var handtekinn fyrir óspektir, en hann hélt þó fram sakleysi sínu. „Ég hef ekkert gert," segir maðurinn. „En það skiptir ekki máli. Þetta hefur að gera með bræðralag manna hér á jörðinni."

Lögreglumennirnir leiða ummæli mannsins hjá sér. Maðurinn situr hljóður um stund. Hann fjarlægir loks gleraugu sín, dregur andann djúpt og hefur flutninginn.

Túlkun mannsins á smelli Queen er í raun magnaður. Hann man textann fullkomlega en breytir honum öðru hverju með vísunum í ástand sitt.

Á köflum þenur maðurinn raddböndinn, trommar á sæti lögreglumannanna og sýnir mikla takta á loft-gítarinn.

„Is this a real life?" spyr maðurinn. „Is this just fantasy?"

Lögreglumennirnir eru hljóðir á meðan flutningurinn stendur yfir. Þegar komið er á lögreglustöðina spyr annar þeirra hvort að söngfuglinn ætli nú ekki að haga sér.

„Líkamlegt ofbeldi er það síðasta sem ég hef áhyggjur af," segir maðurinn.

Hægt er að sjá myndbandið hér fyrir ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×