Erlent

Enn á ný reynist Einstein sannspár

Kenning Albert Einsteins um hraða útþenslu alheimsins hefur verið sönnuð af stjörnufræðingum í Bretlandi.
Kenning Albert Einsteins um hraða útþenslu alheimsins hefur verið sönnuð af stjörnufræðingum í Bretlandi. mynd/AFP
Kenning Albert Einsteins um hraða útþenslu alheimsins hefur verið sönnuð af stjörnufræðingum í Bretlandi. Með því að nota afstæðiskenningu Einsteins gátu vísindamennirnir endurreiknað stækkun alheimsins af mikilli nákvæmni.

Niðurstöður vísindamannanna voru kynntar á alþjóðlegum fundi stjörnufræðinga í Manchester í dag.

Rannsóknin er sögð vera sú nákvæmasta hingað til en vísindamennirnir mældu stækkun alheimsins frá því að hröð útþensla hans hófst fyrir 5 til 6 milljörðum ára.

Aðeins var notast við afstæðiskenningu Einstein og hugmyndir hans um heimsfasta við mælinguna. Niðurstöðurnar eru með ólíkindum nákvæmar en skekkjumörk vísindamannanna eru 1.7 prósent.

Niðurstaðan styrkir afstæðiskenninguna en hún útskýrir hvernig og hversu hratt vetrarbrautirnar nálgast hvor aðra. Þá sýnir kenningin einnig hver hlutfallsleg hröðun alheimsins er í raun.

Kenningar Einstein gera aðeins ráð fyrir þessari útþenslu og útlista hlutfallslega þróun hennar - þannig er enn á huldu hvað knýr hana áfram í raun og veru. Vísindamenn eru þó margir sannfærðir um að hulduorka (e. dark energy) sé undirliggjandi hvati að hraðri útþenslu alheimsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×