Tæpt að kjósa í einu um forseta og stjórnarskrá 20. janúar 2012 09:00 Jóhanna Sigurðardóttir segir að ef hún mætti ráða ferlinu yrði ný stjórnarskrá tilbúin fyrir lok kjörtímabils. Fréttablaðið/anton
Mögulega er orðið of seint að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um drög að nýrri stjórnarskrá samhliða forsetakosningum í júní, að mati Jóhönnu Sigurðardóttur forsætisráðherra. Þetta sagði hún á Alþingi í gær. Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, innti Jóhönnu eftir því hvenær hún sæi fyrir sér að slík þjóðaratkvæðagreiðsla færi fram, hvernig að henni ætti að standa og um hvað skyldi greiða atkvæði. Hann kvaðst telja algjörlega óraunhæft að frumvarp að nýrri stjórnarskrá yrði samið upp úr tillögum stjórnlagaráðs á næstu vikum, þannig að unnt yrði að leggja það fyrir þjóðina. Jóhanna svaraði því til að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd þingsins væri nú með tillögur stjórnlagaráðs til meðferðar og væri að fara yfir umsagnir. Hún vonaðist til að sú vinna gengi hratt og vel og málinu yrði lokið í sátt á næstu vikum. Breyttar tillögur yrðu sendar stjórnlagaráði til lokaumsagnar. „Og síðan – ef ég mætti ráða ferðinni – yrði útbúin þingsályktunartillaga um að málið færi í þjóðaratkvæðagreiðslu,“ sagði Jóhanna. Hún sæi jafnvel fyrir sér að fólk gæti greitt atkvæði um tillögurnar kaflaskipt og að því loknu kæmu þær í frumvarpsformi inn í þingið. Vonandi tækist að afgreiða það fyrir lok kjörtímabils.- sh
Mest lesið Greindi þátt almennings og fjölmiðla í máli „strokufangans“ Innlent Handtóku ökumann eftir eftirför á Sæbraut Innlent Vonar að Rauði krossinn endurskoði afstöðu sína Innlent Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Innlent Þúsundir syrgja í Tehran og Trump segir æðstaklerkinn ljúga Erlent „Ég vorkenni því fólki sem lét narra sig í þessa vegferð“ Innlent Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Innlent Svifvængjaflugslys við Reynisfjall Innlent Mikil reiði á Þingeyri vegna flutnings fóðurstöðvar Arctic Fish Innlent Segir ásakanir kjaftæði og íhugar meiðyrðamál Innlent Fleiri fréttir Formaður og gjaldkeri Vorstjörnunnar kærð fyrir efnahagsbrot Mikil reiði á Þingeyri vegna flutnings fóðurstöðvar Arctic Fish Ráðherra vill tryggja betra eftirlit með Sjúkratryggingum Íslands Segir tölurnar sláandi og vill bregðast við „Ég vorkenni því fólki sem lét narra sig í þessa vegferð“ Sósíalistar deila um peninga og metþátttaka í ólöglegri baráttugöngu Kostnaður vegna kynja- og jafnréttismála sextán milljónir Svifvængjaflugslys við Reynisfjall Handtóku ökumann eftir eftirför á Sæbraut Vonar að Rauði krossinn endurskoði afstöðu sína Segir ásakanir kjaftæði og íhugar meiðyrðamál „Þurfum að huga að forvörnum“ Átök í Sósíalistaflokknum, þinglokaviðræður og síðasti dagur Litlu kaffistofunnar Veiðigjöld ekki á dagskrá þingfundar í dag Gripinn við innbrot og bíl ekið inn í búð Greindi þátt almennings og fjölmiðla í máli „strokufangans“ Mikill viðbúnaður vegna eftirfarar á Sæbraut Sagður hafa tæmt sjóði flokksins og rekur nýja stjórn úr húsnæðinu Halla forseti blandar sér í götuljósaumræðuna Reiða fram rúma milljón fyrir Jakub Tilraun langtímakjarasamninga hafi mistekist Málið rannsakað sem tilraun til manndráps Telja Múmínlundinn klárt brot á höfundarétti Glænýr leikskóli í Mosfellsbæ heitir Sumarhús Verðbólguvonbrigði, hraðakstur og kokkur með keppnisskap Málið týndist í kerfinu og reyndist á endanum fyrnt Segulómtækið enn óvirkt og beðið eftir þúsund lítrum af helíni „Allar kannanir eru með einhverja óvissu“ Steini frá Straumnesi látinn Áfram frestað meðan formenn funda Sjá meira