Veiðileyfum í vötnum og ám verði úthlutað 11. janúar 2012 09:00 Þór Saari
Þingmaðurinn Þór Saari segir gróðahyggjuna komna út úr korti í stangveiði. Venjulegir veiðimenn hrekist burt. Gera ætti veiðirétt að almannarétti og úthluta stangveiðileyfum á sama hátt og nú er með hreindýraveiðileyfi. Þór Saari, alþingismaður Hreyfingarinnar, telur að koma ætti upp sama fyrirkomulagi við sölu stangveiðileyfa og er við úthlutun veiðileyfa á hreindýrum. Á spjallsvæði Stangaveiðifélags Reykjavíkur segir Þór stangaveiðimarkaðinn einkennast af því að framboð af ám sé takmarkað. Verðið hafi hækkað gríðarlega því eftirspurnin sé mikil. „Slík náttúruleg fákeppni – jafnvel einokun – er almennt litin hornauga af samkeppnisyfirvöldum flestra landa og það er reynt að tryggja hag neytenda,“ skrifar Þór sem kveður veiðirétt í ám og vötnum eiga að vera almannaréttur sem yrði svo úthlutað með sams konar hætti og hreindýraleyfum. „Veiðiám yrði skipt upp í mismunandi flokka, verðin gerð aðgengileg fyrir almenning og síðan úthlutað úr potti samkvæmt því. Veiðiréttar„eigendur“ fengju borgað – en ekki eins mikið – og gætu hagnast áfram á sölu gistingar og fæðis,“ segir Þór. „Enginn á íslenska náttúru og þó bændur hafi nýtingarrétt á ám þá er gróðahugsjónin í því geimi komin alveg út úr kortinu,“ skrifar Þór sem telur þörf á að hugsa um stangveiði og hlunnindanýtingu út frá öðrum forsendum en hámarksgróða fyrir nýtingarréttarhafann. Margir taka þátt í umræðunni á vef Stangaveiðifélagsins. „Sjálfur er ég þeirrar skoðunar að „útlendingarnir“ séu ekki komnir til að vera og þegar harðnar enn meira á dalnum í evrulandi þá muni þeir halda að sér höndum og þegar krónan okkar styrkist þá verður þetta enn erfiðara fyrir þá útlensku,“ skrifar Bjarni Júlíusson, formaður félagsins. Stefán Páll Ágústsson segir hugmyndir um þjóðnýtingu veiðihlunninda ekki nýja. Auðvitað vilji allir geta keypt góð veiðileyfi á mun lægra verði en nú þurfi að að borga. „Við myndum líka vilja geta keypt betri bíla og stærra húsnæði á miklu lægra verði en okkur býðst nú. Hvaða handstýringar vilja menn setja á slík viðskipti?“ spyr Stefán Páll. Í samtali við Fréttablaðið segist Þór alls ekki vera að óska eftir þjóðnýtingu á landi bænda. „Hugsunin á bak við þetta er miklu djúpstæðari en að ég vilji sjálfur getað keypt mér ódýrari veiðileyfi. Þetta snýst um það hvort einhver geti átt landið og átt náttúruna og hvernig eigi að ráðstafa aðgangi að náttúrugæðum. Það er réttlætissjónarmið að íslenskir veiðimenn séu ekki hraktir út í að aðkoma þeirra að íslenskum veiðiám sé sú að þjóna útlendum auðjöfrum sem leiðsögumenn.“ gar@frettabladid.is
Mest lesið Orbán játar sig sigraðan Erlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Erlent Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Innlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Maður hífður upp úr Ölfusá Innlent Komið að ögurstundu Erlent Friðarviðræður runnu út í sandinn Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Innlent Fleiri fréttir Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Spá enn vaxtahækkun í maí Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Verzló hreppti hljóðnemann eftir sigur gegn MR Landskjörstjórn telur spurningu Þorgerðar gildishlaðna Góðan daginn býður góðan dag Óvæntur ríkisstjórnarfundur boðaður að kvöldi Sjá meira