Metnaðarfullir foreldrar eyðilögðu rótgróna hefð 26. mars 2012 22:30 Eggjaleitin hefur ávallt verið ætluð börnum en á síðasta ári gætu foreldrarnir ekki hamið sig.
Ágengir foreldrar eru orsökin fyrir því að hinni árlegu páskaeggjaleit í Colorado Springs hefur verið aflýst. Eggjaleitin hefur ávallt verið ætluð börnum en á síðasta ári gátu foreldrarnir ekki hamið sig. Það tók foreldrana aðeins nokkrar sekúndur að finna öll páskaeggin á síðasta ári. Börnin störðu agndofa á eftir foreldrum sínum sem hoppuðu inn í lystigarðinn og leituðu að páskaeggjunum. Þeir komu síðan til baka færandi hendi og börnin fengu eggin sín. Skipuleggjendur segja að eggjaleitin hafi tekið stakkaskiptum með athæfi foreldranna og að ekki sé lengur um fjölskylduvæna hefð að ræða. Því hefur verið ákveðið aflýsa eggjaleitinni í ár. Uppeldisráðgjafar segja að atvikið sé afar gott dæmi um hið svokallaða „þyrlu-foreldri." Slíkir foreldrar sveimi sífellt yfir börnum sínum og eru nátengdir öllum þáttum daglegs lífs barna sinna. Er þetta gert til að börnin nái sem mestum árangri á mismunandi sviðum lífsins. „Þau einfaldlega gátu ekki staðist mátið, þau gátu ekki ímyndað sér að börnin þeirra myndu ekki fá páskaegg," segir Ron Alsop, fyrrverandi blaðamaður hjá Wall Street Journal og höfundur bókarinnar „The Trophy Kids Grow Up" en hún fjallar um uppvaxtarár árþúsundabarnanna. „Þetta er fullkomin birtingarmynd á uppvexti árþúsundabarna," segir Alsop. „Foreldrar finna fyrir sterkri þörf fyrir að vera hluti af öllum þáttum í lífi barna sinna. Þau gefa börnum þeim ekki tækifæri á að gera mistök. Þar af leiðandi læra börnin ekki af mistökum sínum - sem er auðvitað mjög slæmt." Ekki er vitað hvort að skipuleggjendur leitarinnar ætla endurvekja hefðina að ári.
Mest lesið Fyrsta mannfall Rússa í umsátri í Malí Erlent Hringdi í norskan ráðherra til að ræða friðarverðlaun Nóbels Erlent Þrír handteknir grunaðir um að hafa rænt mann Innlent „Tærnar á manni krullast þegar maður sér svona“ Innlent Gervigreindin býr til tvö ný sýklalyf gegn ónæmum bakteríum Erlent Ráðist á Palestínumenn á Vesturbakkanum Erlent Öskurrifust við leigubílstjóra: „Farið til helvítis, þið munuð borga mér“ Innlent Segir 75 prósent líkur á árangursríkum fundi í kvöld Erlent Buffalo-morðinginn kvartar yfir skorti á þeldökku fólki Erlent „Hamfarir og ekkert annað“ Innlent Fleiri fréttir Komu sér ekki saman um aðgerðir gegn plastmengun Ráðist á Palestínumenn á Vesturbakkanum Gervigreindin býr til tvö ný sýklalyf gegn ónæmum bakteríum Segir 75 prósent líkur á árangursríkum fundi í kvöld Fyrsta mannfall Rússa í umsátri í Malí Hringdi í norskan ráðherra til að ræða friðarverðlaun Nóbels Buffalo-morðinginn kvartar yfir skorti á þeldökku fólki „Gervigreindargeðrof“ hrellir sálfræðinga Samþykkti landtökubyggð til að fyrirbyggja palestínskt ríki Grindavík fær nafna í smástirnabeltinu Borgarstjóri Anchorage segir allt til reiðu fyrir leiðtogafund Nýr talnaspekingur Trump við þinghúsið þegar ráðist var á það Hækkun sjávarmáls ógnar styttum Páskaeyju Starmer og Selenskí funda í dag Trump tilkynnti um næstu heiðursfélaga Kennedy-miðstöðvarinnar Melania Trump hótar lögsókn á hendur Hunter Biden Vilja afvopna einangraða og veikburða Hezbollah-liða Sendu tvö herskip að umdeildu rifi eftir ásiglingu Kínverja Sprengingar eftir eldingu Rússar helsta ógnin sem Norðmenn standi frammi fyrir Kýrskýrt að aðeins Selenskíj geti samið um landsvæði Blaðamenn drepnir í tugatali: Banvænt mynstur misræmis og mótsagna Fundað í hverju horni fyrir Alaskahitting Trump og Pútín Öfgahægriflokkur mælist stærstur í Þýskalandi Hitamet falla og gróðureldar geisa í Evrópu og víðar Rússar myndu nota Donbas til að ráðast enn lengra inn í Úkraínu Ósköp venjuleg kona ráðin sem leigumorðingi eftir kynni á stefnumótaforriti Sendir frá Norður-Kóreu í „þrældóm“ í Rússlandi Greta Thunberg siglir á ný til Gasa Skoða að stofna viðbragðssveit gegn uppþotum í Bandaríkjunum Sjá meira