Þriðji íslenski flytjandinn á topp tíu breska listans 4. september 2012 15:30 Nanna Bryndís Hilmarsdóttir á tónlistarhátíð á Írlandi á sunnudaginn. Of monsters and men hefur slegið í gegn beggja vegna Atlantshafsins með sinni fyrstu plötu.
Of Monsters and Men náði frábærum árangri með því að ná þriðja sæti á breska listanum með sinni fyrstu plötu. Aðeins Björk og Sigur Rós höfðu áður komið plötum sínum á topp tíu þar í landi. Allir þessir flytjendur hafa einnig náð inn á topp tíu á bandaríska Billboard-listanum. Björk var fyrsti íslenski flytjandinn sem komst á topp tíu-listann í Bretlandi árið 1993 með fyrstu plötu sinni Debut. Næstu fimm plötur hennar komust einnig á lista yfir þær tíu vinsælustu. Aðeins sú nýjasta, Biophilia, náði því ekki. Billboard-listinn í Bandaríkjunum hefur haldið utan um plötusölu þar í landi frá árinu 1945. Þar hefur Björk einungis einu sinni komist á topp tíu, eða með Volta. Sigur Rós hefur tvisvar komist á lista yfir tíu vinsælustu plötur Bretlands. Besti árangur hennar er 5. sæti en sveitin náði því áttunda með Valtara sem kom út fyrr á þessu ári. Í Bandaríkjunum náði Sigur Rós 7. sæti með sömu plötu og er hún sú eina frá sveitinni sem hefur komist þar inn á topp tíu. Of Monsters and Men hefur fetað í fótspor Bjarkar og Sigur Rósar með frumburði sínum My Head is an Animal. Þriðja sætið í Bretlandi jafnar met Bjarkar hvað varðar fyrstu plötu. Sjötta sætið á Billboard-listanum er aftur á móti besti árangur sem íslenskur flytjandi hefur náð á þessum sögufræga lista. Aðrir sem hafa verið nálægt því að komast á topp-tíu í Bretlandi eða í Bandaríkjunum eru Jónsi úr Sigur Rós með sólóplötu sína Go, sem náði 20. sæti í Bretlandi og því 23. í Bandaríkjunum, og Sykurmolarnir með Björk í fararbroddi, sem náðu öllum þremur plötum sínum í 14., 15. og 16. sæti í Bretlandi frá 1988 til 1992. freyr@frettabladid.is
Mest lesið Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Lífið Grái skilnaðurinn: Sífellt fleiri 50+ að skilja Áskorun Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Lífið Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Lífið Of Monsters and Men með stórtónleika á Íslandi Tónlist Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Lífið Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Lífið Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Lífið Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Lífið Fengu Dern í stað Bonham Carter Lífið Fleiri fréttir Fengu Dern í stað Bonham Carter Jóhann Alfreð með púlsmæli og fékk að finna fyrir því Úrslitakvöld Eurovision verður í beinni á Rúv 2 Rándýr trefill varð ælu Bjargar að bráð á Prikinu Fíknin tók yfir: „Vorum ótrúlega nánar vinkonur“ Dorrit djammaði með Adwoa Aboah á Sikiley Ástin blómstrar hjá Svala og Birnu Oddvitaáskorunin: Úr jail-inu í Yale Sjóðandi einhleypar sumarskvísur Kolféllu fyrir Brooklyn í hjónasportinu Fögnuðu fjörutíu árum Krýsuvíkursamtakanna Oddvitaáskorunin: Besti landsbyggðarandinn þrátt fyrir fjölmenni Sigur Rós spilar í 100 ára afmæli Attenboroughs Andar sig reyklaus í gegnum kosningabaráttuna Ókunnug kona í salnum lifði sig gríðarlega inn í þáttinn Adam fór á skeljarnar í Kerlingarfjöllum Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimmtán ár“ Albert keypti þakíbúð á hálfan milljarð Höguðu sér vel á árshátíð Haga Útför Björgvins Halldórssonar Athafnakona selur draumaíbúð í Hlíðunum Oddvitaáskorun: Býr á Hellu en eiginmaðurinn í Belgíu Áfengið yndislegt ef þú kannt að fara með það Gummi Tóta og Guðbjörg keyptu á 145 milljónir Jónas upplifði pot Ásdísar ekki sem árás „Matur var orðinn besti vinur minn og æðri máttur“ Ellen verður að Dóru á ný Tala dýrsins 666 og Neró keisari Stjörnulífið: Sumarbumbur, bossar og sól Framíkalli svarað með poti í oddvitarimmu Sjá meira