Níu af hverjum tíu hafa nú aðgang að hreinu vatni 12. mars 2012 04:00 Hreint vatn getur skipt sköpum, ekki síst fyrir börn, en yfir þrjú þúsund börn deyja af völdum niðurgangspesta á hverjum degi. nordicphotos/afp
Meira en tveir milljarðar manna hafa fengið aðgang að hreinu drykkjarvatni frá árinu 1990, sem þýðir að þúsaldarmarkmiði Sameinþjóðanna uðu þjóðanna um aðgengi að hreinu vatni hefur náðst. Frá þessum áfanga var greint á þriðjudag þegar Barnahjálp Sameinuðu (UNICEF) og Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) kynntu skýrslu um framfarir á sviði vatns og hreinlætis. Bætt aðgengi að drykkjarhæfu vatni þýðir meðal annars að vatnið er í lokuðum leiðslum eða vel birgðum brunnum svo óhreinindi og sýkingar komast ekki í það. Árangurinn er viðurkenning fyrir þá sem sjá þúsaldarmarkmiðin ekki eingöngu sem draum heldur sem mikilvægt skref til að bæta heilsu og líf fólks, segir Ban Ki-moon aðalritari SÞ í formála skýrslunnar. Hann sagði jafnframt í tilefni af útgáfu skýrslunnar að fagna bæri þessum stóráfanga, en þetta er eitt af fyrstu markmiðunum sem nást. Skýrslan sýnir þó einnig að verkinu er ekki lokið því ellefu prósent jarðarbúa, eða 783 milljónir manna, hafa ekki aðgang að hreinu vatni. Sá hluti þúsaldarmarkmiðsins sem snýr að hreinlætismálum er ekki í eins góðum farvegi. Markmiðið var að lækka hlutfall þeirra sem ekki hafa aðgang að viðunandi hreinlætisaðstöðu um helming fyrir árið 2015. 63 prósent jarðarbúa hafa aðgang að klósettum eða annarri aðstöðu sem heldur fólki úr snertingu við úrgang, en hlutfallið ætti að vera orðið 75 prósent eftir þrjú ár. Bætt hefur verið úr aðstöðu hjá 1,8 milljarði manna á síðustu tuttugu árum en enn skortir rúman milljarð manna aðgang að hreinlætisaðstöðu. „Þetta eru sérstaklega góðar fréttir fyrir börn. Á hverjum degi láta yfir þrjú þúsund börn lífið af völdum niðurgangspesta,“ sagði Anthony Lake, framkvæmdastjóri UNICEF, við útgáfu skýrslunnar. Stefán Ingi Stefánsson, framkvæmdastjóri stofnunarinnar hér á landi, tekur í sama streng og segir tíðindin sýna að hægt sé að ná árangri. „Með samhentu átaki og einbeittum vilja getum við tryggt öllum börnum hreint vatn og viðunandi hreinlætisaðstöðu.“thorunn@frettabladid.is
Mest lesið Gleymdu að lækka launin og senda nú bakreikning Innlent „Kristrún eini hagfræðingur landsins sem hefur rétt fyrir sér“ Innlent Hildigunnur hættir strax eftir ákvörðun ráðherra Innlent Sakfelldar fyrir að brjótast um borð í hvalveiðiskip Innlent Talinn hafa selt eiginkonuna til yfir 120 kaupenda í Pelicot-máli Svíþjóðar Erlent Mánudagsmorgunn í Kaffistofu Samhjálpar Innlent „Alveg hræðilegt ástand“ Innlent Þjökuð af samviskubiti meðan pabbinn bíður eftir plássi Innlent Obama gefur út yfirlýsingu um mögulega tilvist geimvera Erlent Afi sakaður um að nudda kynfæri stúlku Innlent Fleiri fréttir Földu fíkniefni í morgunkornspökkum og fengu send Nýr samfélagsmiðill bara fyrir Íslendinga Opinbera komið til móts við fimm ábendingar af 23 Óhollustuskattur hafi mest áhrif á þá tekjulægri Gunnar, Guðfinnur og Sigríður á leið úr bæjarstjórn „Alveg hræðilegt ástand“ Aldraðir stíga fram og opna sig um „hræðilega stöðu“ Ekið á gangandi vegfaranda Suðurlandsvegi lokað vegna áreksturs tveggja bíla „Þetta er sorglegur dagur fyrir lýðræðið“ „Kristrún eini hagfræðingur landsins sem hefur rétt fyrir sér“ Brynja Dan vill leiða lista Framsóknar í Garðabæ Samþykktu heimild til að svipta flóttamenn vernd Þurfa að brúa sex milljarða króna bil Formaður Pírata sækist eftir öðru til fjórða sæti Hildigunnur hættir strax eftir ákvörðun ráðherra Styrkur svifryks áfram hár í borginni Lögga ákærð fyrir leit án heimildar Yfirvöld hafi útvegað tvö ný rými og óbreytt ástand Afi sakaður um að nudda kynfæri stúlku Sakfelldar fyrir að brjótast um borð í hvalveiðiskip Arnar Eggert hafnar því að HÍ sé „vók-útungunarstöð“ Verra að vera í bíl en gangandi í svifrykinu Kristinn Jón tekur slaginn við Alexöndru Fólk sólgið í bollur og mjög opið fyrir nýjungum Óbreytt ástand á Landspítala og svifrykið hrellir borgarbúa Kallar eftir rannsókn á snjóflóðinu á Flateyri Gleymdu að lækka launin og senda nú bakreikning Guðmundur Ingi gefur ekki kost á sér Þjökuð af samviskubiti meðan pabbinn bíður eftir plássi Sjá meira