Greining sýnir veikleika almannavarna 12. mars 2012 06:00 Mannheimar eru víða veikir fyrir. Aðeins ein samræmd viðbragðsáætlun er til vegna eldgosa hér á landi; fyrir Kötlu og Eyjafjallajökul.
Auka þarf viðbúnað í almannavarnakerfinu verulega, er niðurstaða áhættuskoðunar Almannavarna fyrir landið allt. Vinna er þegar hafin vegna atburða sem taldir eru geta haft í för með sér „mikla eða gífurlega áhættu“ og settar voru í fyrsta forgang í greiningu sem staðið hefur yfir árum saman. Þar má nefna hættumat vegna eldgosa á landinu, viðbragðsáætlun vegna gróðurelda, áætlanagerð og æfingar vegna hópslysa bæði í siglingum og í umferðinni. Áhættuskoðunin, sem birt var í fyrir helgi, fjallar um þær hættur sem almannavarnir gætu þurft að takast á við í framtíðinni, og unnin með heimamönnum í öllum 15 lögregluumdæmunum með almannavarnanefndum, lögreglustjórum og fleirum. Eins og Fréttablaðið greindi frá í síðustu viku er aðkallandi að vinna aðgerðaáætlanir vegna 200 mismunandi hættuástands sem hér getur skapast. Víðir Reynisson, sérfræðingur hjá Almannavörnum, segir að viðbragðsáætlanir þyrfti að vinna hratt; að um forgangsverkefni væri að ræða þar sem hættan er mest. Aðeins er til ein samhæfð viðbragðsáætlun vegna eldgosa en engin slík áætlun er til vegna jarðskjálfta á Íslandi. Stingur verulega í augun að hvorki hættumat né viðbragðsáætlun vegna eldgoss í Vestmannaeyjum er til staðar, en stórtjón varð þar árið 1973, eins og kunnugt er. Í ritinu, sem er mikið vöxtum, segir meðal annars að útbúa þurfi hópslysaáætlanir í flestum umdæmum bæði á landi og sjó. Er þar vikið sérstaklega að sífellt tíðari komum skemmtiferðaskipa til landsins. Á móti kemur að viðbúnaður og viðbragð þegar snjóflóðahætta verður í þéttbýli er í „tiltölulega góðum farvegi“. Þar sem áhættan hefur verið skilgreind hafa verið gerðar rýmingaráætlanir fyrir 16 þéttbýlisstaði. Eins eru til samhæfðar viðbragðsáætlanir fyrir flugvelli landsins; þær eru uppfærðar og æfðar reglulega. Þá er mikilvægt að styrkja verulega viðbúnað og viðbrögð vegna stórfelldra bilana og truflana á helstu innviðum landsins eins og veitum, fjarskiptum, samgöngum og öryggismálum, svo fátt sé nefnt. Eitt eru allir sammála um sem komu að vinnslu skýrslunnar og það er að Almannavarnir hér á landi búa yfir miklum mannauði og undirstoðir frekari vinnu eru sterkar. svavar@frettabladid.is
Mest lesið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Erlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Innlent Fleiri fréttir Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Sjá meira