Innlent

Sló annan í höfuðið með strákústi

Karlmaður var í dag dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir líkamsárás fyrir utan iðnaðarhúsnæði á Selfossi síðasta sumar en hann sló annan mann í höfuðið með strákústi með þeim afleiðingum að fórnarlambið hlaut skurð á höfði og brot á handlegg.

Maðurinn neitaði sök fyrir dómi en játaði þó að hafa slegið hann með strákústi þegar honum var ógnað með kúbeini. Hann var dæmdur til að greiða fórnarlambinu 150 þúsund krónur í bætur og allan sakarkostnað í málinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×