Erlent

Dularfullur blossi í beinni útsendingu

Fréttastöðin KSAZ-TV, í Phoenix í Bandaríkjunum, náði sérkennilegum blossa á myndband þegar sjónvarpskona flutti fréttir af veðri á fimmtudagsmorgun. Samkvæmt frétt AP um málið er ekki vitað hvað olli blossanum sem líkist sprengingu.

Engar fregnir hafa borist um sprengingar á svæðinu auk þess sem búið er að útiloka að þarna sé um náttúrulegt fyrirbrigði að ræða. Þess má geta að blossinn myndaðist tiltölulega nálægt herflugvelli á svæðinu. Samkvæmt AP fréttastofunni hafa engin svör borist frá hernum við fyrirspurnum fréttaveitunnar.

Hægt er að sjá umfjöllun sjónvarpsfréttastöðvarinnar með því að ýta á hlekkinn hér fyrir ofan. Þar er lýst eftir upplýsingum um dularfulla blossann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×