Segir tillöguna um að draga ákæru til baka Alþingi til minnkunar 19. janúar 2012 16:13
Hreyfingin segir tillögu til þingsályktunar um afturköllun ákæru á hendur Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, Alþingi til minnkunar. Í yfirlýsingu frá Hreyfingunni segir að sú ákvörðun forseta Alþingis, að taka tillöguna á dagskrá, og grípa þar með inn í dómsmál, sé í hrópandi ósamræmi við fyrri afstöðu forseta í sambærilegu máli; máli níumenninganna svokölluðu, sem ákærðir voru fyrir árás á Alþingi. „Að taka tillögu sem þessa á dagskrá er að okkar mati bæði Alþingi sem og forseta þingsins til minnkunnar," segir svo orðrétt. Þá gagnrýnir Hreyfingin að tillagan skuli vera tekin fyrir á þriggja ára afmæli búsáhaldabyltingarinnar, sem er á morgun. Hér fyrir neðan má lesa tilkynninguna í heild sinni:Formaður Sjálfstæðisflokksins, hefur lagt fram tillögu til þingsályktunar um afturköllun ákæru á hendur Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra. Tillagan er á dagskrá Alþingis á morgun, föstudaginn 20. janúar 2012, á þriggja ára afmæli búsáhaldabyltingarinnar.Sú ákvörðun forseta Alþingis að taka tillöguna á dagskrá, og grípa þar með inn í dómsmál, er í hrópandi ósamræmi við fyrri afstöðu forseta í sambærilegu máli; máli níumenninganna svokölluðu, sem ákærðir voru fyrir árás á Alþingi, máli valdsins gegn skrílnum. Að taka tillögu sem þessa á dagskrá er að okkar mati bæði Alþingi sem og forseta þingsins til minnkunnar. Í ljósi þess vantrausts sem ríkir í garð þingsins töldu sjálfsagt margir að botninum væri náð. Því miður hefur forseta þingsins nú tekist að setja Alþingi enn neðar með þessari þjónkun við þá pólitísku yfirstéttar sem hún tilheyrir.Æðstu embættum samfélagsins fylgja ábyrgð og skyldur. Því hlýtur að vera eðlileg krafa að þeir sem embættunum gegna axli ábyrgð á störfum sínum. Í því sambandi er mikilvægt að hafa í huga að málið gegn fyrrverandi forsætisráðherra byggist á lögum um ráðherraábyrgð.Birgitta Jónsdóttir,Margrét Tryggvadóttir,Þór Saari
Mest lesið Dánarorsök Ozzy Osbourne ljós Erlent Segja upp og draga úr útgáfu: Óvissan í rekstrinum „því miður aukist mikið“ Innlent Hættir að fjármagna þróun mRNA bóluefna Erlent Hvar á að grípa niður í fækkun innflytjenda? Innlent Öryggismyndavélar í svefnherberginu og fyrsta útgáfa af Lolitu á skrifstofunni Erlent Lax ofan Stuðlagils gæti hafa veiðst lengst frá sjó á Íslandi Innlent Blóðbankinn á leið í Kringluna Innlent Handtekin fyrir ölvunarakstur eftir grænt ljós frá löggunni Innlent Trúa varla að tollahækkanirnar séu að skella á Viðskipti innlent Tveir skjálftar yfir þrír að stærð Innlent Fleiri fréttir Minnsti þéttleiki makríls síðan 2010 Tveir skjálftar yfir þrír að stærð Hvar á að grípa niður í fækkun innflytjenda? Blóðbankinn á leið í Kringluna Nokkuð um hávaðaútköll Segja upp og draga úr útgáfu: Óvissan í rekstrinum „því miður aukist mikið“ Lax ofan Stuðlagils gæti hafa veiðst lengst frá sjó á Íslandi Til skoðunar að hafa mannskap við vöktun í Reynisfjöru Herða öryggisreglur eftir slysið: „Þetta hafa verið mjög erfiðir dagar“ Flugeldum kastað að fólki á Akureyri Handtekin fyrir ölvunarakstur eftir grænt ljós frá löggunni Ráðstafanir í Reynisfjöru, tollar og lax á sjaldséðum slóðum Boðar fund um tolla Trumps og ESB Rauða ljósið mun blikka fyrr Enn má búast við gosmóðu þó eldgosinu sé lokið í bili Flutti lítra af kókaínvökva til landsins gegn greiðslu „Samstaða skapar samfélag“ er þema Hinsegin daga Strangari reglur og ný gjaldskrá til að „tempra kraftmikla fólksfjölgun“ Neyddur til að taka ketamín og sjónvarpi kastað í höfuð hans Tollar Trumps muni hafa tilætluð áhrif Sendir „dylgjur“ Haralds aftur til föðurhúsanna Allt bendir til þess að eldgosinu sé lokið Vörubifreið ekið á vegfarandann Útlendingamálin, Reynisfjara og Hinsegin dagar Ferðamenn gangi á eigin ábyrgð til leiks við náttúru Íslands Ekið á gangandi vegfaranda við Kaplakrika Boðar „norsku leiðina“ í útlendingamálum Mjög lítil virkni en mallar enn Reyndist ekki borgunarmaður fyrir vikudvölinni Ekki stóra málið hvað við köllum „leyniþjónustuna“ Sjá meira