Innlent

ÍBV og Þjóðhátíðarnefnd fá hvatningaverðlaun Femínistafélags Íslands

Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum.
Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum.
Bleiku steinarnir, hvatningarverðlaun Femínistafélags Íslands, eru afhentir í dag. Handhafar bleiku steinanna að þessu sinni eru Þjóðhátíðarnefnd og stjórn ÍVB.

Í tilkynningu frá Femínistafélagi Íslands segir að Bleiku steinunum sé ætlað að hvetja viðtakendur til að hafa jafnréttissjónarmið ætíð að leiðarljósi í verkum sínum. Ofangreindir aðilar hljóta þessa hvatningu í ljósi komandi hátíðarhalda Þjóðhátíðar í Vestmanneyjum síðar í sumar.

Svo segir í tilkynningu félagsins:

Samkvæmt fréttum voru a.m.k. fimm nauðganir tilkynntar eftir síðustu Þjóðhátíð í Eyjum en ekki er hægt að reikna með að sú tala sé endanleg þar sem að samkvæmt reynslu þeirra sem aðstoða þolendur kynferðisofbeldis getur liðið þó nokkur tími á milli þess að brotið á sér stað og þar til þolendur leita sér aðstoðar.

Í ljósi ummæla formanns Þjóðhátíðarnefndar fyrir síðustu Þjóðhátíð um að samtök á borð við Stígamót sem aðstoða þolendur kynferðisofbeldis, auki á vandamál sem tengjast nauðgunum á útihátíðum, telur Femínistafélag Íslands brýnt að minna ábyrgðaraðila hátíðarinnar á að nauðganir eru nauðgurum að kenna og engum öðrum – nema ef vera skyldi samfélagi sem grípur ekki til alvarlegra aðgerða gegn slíkri hegðun.

Til að sporna við nauðgunum á Þjóðhátíð verður að grípa til aðgerða. Nauðsynlegt er að hátíðarhaldarar fræðist sjálfir og miðli upplýsingum til annarra um hvað kynferðisofbeldi sé og hvaða afleiðingar það hefur. Aðkoma forvarnarhópa (t.d. NEI-hópsins) er mjög æskileg, og þá telur Femínistafélagið að hátíðarhaldarar ættu að leita til Stígamóta og falast eftir reynslu þeirra og aðstoð á hátíðinni. Afar mikilvægt er að hátíðarhaldarar gefi út yfirlýsingu um að nauðganir séu nauðgurum að kenna og engum öðrum. Nauðganir verði ekki liðnar á Þjóðhátíð, heldur barist gegn þeim með öllum ráðum tiltækum.

Femínistafélag Íslands hefur trú á að ríkur vilji sé fyrir hendi hjá hátíðarhöldurum til að koma í veg fyrir hvers kyns ofbeldi á hátíðinni og treystir því að þeir taki þessari hvatningu og geri það að sínu aðal-markmiði að næsta Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum verði nauðgunarlaus. Femínistafélag Íslands ber þá von í brjósti að hið sama verði upp á teningnum í skipulagi og framkvæmd annarra útihátíða sem haldnar verða víðsvegar um landið í sumar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×