ÍBV og Þjóðhátíðarnefnd fá hvatningaverðlaun Femínistafélags Íslands 19. júní 2012 11:29 Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum.
Bleiku steinarnir, hvatningarverðlaun Femínistafélags Íslands, eru afhentir í dag. Handhafar bleiku steinanna að þessu sinni eru Þjóðhátíðarnefnd og stjórn ÍVB. Í tilkynningu frá Femínistafélagi Íslands segir að Bleiku steinunum sé ætlað að hvetja viðtakendur til að hafa jafnréttissjónarmið ætíð að leiðarljósi í verkum sínum. Ofangreindir aðilar hljóta þessa hvatningu í ljósi komandi hátíðarhalda Þjóðhátíðar í Vestmanneyjum síðar í sumar. Svo segir í tilkynningu félagsins: Samkvæmt fréttum voru a.m.k. fimm nauðganir tilkynntar eftir síðustu Þjóðhátíð í Eyjum en ekki er hægt að reikna með að sú tala sé endanleg þar sem að samkvæmt reynslu þeirra sem aðstoða þolendur kynferðisofbeldis getur liðið þó nokkur tími á milli þess að brotið á sér stað og þar til þolendur leita sér aðstoðar. Í ljósi ummæla formanns Þjóðhátíðarnefndar fyrir síðustu Þjóðhátíð um að samtök á borð við Stígamót sem aðstoða þolendur kynferðisofbeldis, auki á vandamál sem tengjast nauðgunum á útihátíðum, telur Femínistafélag Íslands brýnt að minna ábyrgðaraðila hátíðarinnar á að nauðganir eru nauðgurum að kenna og engum öðrum – nema ef vera skyldi samfélagi sem grípur ekki til alvarlegra aðgerða gegn slíkri hegðun. Til að sporna við nauðgunum á Þjóðhátíð verður að grípa til aðgerða. Nauðsynlegt er að hátíðarhaldarar fræðist sjálfir og miðli upplýsingum til annarra um hvað kynferðisofbeldi sé og hvaða afleiðingar það hefur. Aðkoma forvarnarhópa (t.d. NEI-hópsins) er mjög æskileg, og þá telur Femínistafélagið að hátíðarhaldarar ættu að leita til Stígamóta og falast eftir reynslu þeirra og aðstoð á hátíðinni. Afar mikilvægt er að hátíðarhaldarar gefi út yfirlýsingu um að nauðganir séu nauðgurum að kenna og engum öðrum. Nauðganir verði ekki liðnar á Þjóðhátíð, heldur barist gegn þeim með öllum ráðum tiltækum. Femínistafélag Íslands hefur trú á að ríkur vilji sé fyrir hendi hjá hátíðarhöldurum til að koma í veg fyrir hvers kyns ofbeldi á hátíðinni og treystir því að þeir taki þessari hvatningu og geri það að sínu aðal-markmiði að næsta Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum verði nauðgunarlaus. Femínistafélag Íslands ber þá von í brjósti að hið sama verði upp á teningnum í skipulagi og framkvæmd annarra útihátíða sem haldnar verða víðsvegar um landið í sumar.
Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Fresta leit að ferðamanninum Innlent Ný nefnd hefur náðað þrjá Innlent Tóku tvö skip og réðust á það þriðja Erlent Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Innlent Vélmennið Ace sigrar atvinnumenn í borðtennis Erlent Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Erlent Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Innlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Fleiri fréttir Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Skýrslur um hraunvá kalla á samtal um hvar megi byggja Stefnt á hvalveiðar í sumar: „Það má ekki einn hvalur deyja í sumar“ Lækka veiðiráðgjöf á hval verulega Varnargarðarnir hafi sannað gildi sitt en stjórnsýslan ekki staðist prófið „Blóðmassinn svartur sem hel“ Leita að ferðamanni við Háafoss og ný skýrsla um varnargarðana Varnargarðar á Reykjanesi: Verkefnið ríkislögreglustjóra ofviða Halda áfram umfangsmikilli leit að ferðamanni við Háafoss Kallar formann VR „ómerkilegan popúlista“ „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Sjá meira