Jóhanna: Mikill árangur náðst frá hruni Jóhanna Margrét Gísladóttir skrifar 17. júní 2012 12:09 Jóhanna á Austurvelli í morgun mynd/daníel
Forsætisráðherra segir þjóðina hafa náð gríðarlegum árangri frá hruni, samdráttarskeiðið hafi verið stryttra hér en annarss staðar og jöfnuður aukist til muna. Hún segir átök á vettvangi stjórnmálanna ekki hafa verið hatrammari á 34 ára ferli hennar sem stjórnmálamaður. Hátíðardagskrá sautjánda júní hófst í Reykjavík með guðþjónustu í Dómkirkjunni klukkan korter yfir tíu. Uppúr ellefu hófst síða hefðbundin hátíðardagsrá Alþingis og forsætisráðuneytisins við Austurvöll þar sem forsetinn lagði blómsveig að minnisvarða Jóns Sigurðssonar. Því næst tók Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra til máls og minntist þess sem gerst hefur á síðustu fjórum árum frá hruni. Hún sagði að búið væri að leggja grunn að nýju og betra samfélagi og erfiðasta samdráttarskeiðið hafi verið styttra hér en á öðrum löndum og árangur til aukins jöfnuðar sé mun meiri en hana dreymdi um fyrir þremur árum. Þá sagði hún náttúru- og auðlindamál þjóðarinnar hafa verið tekin til gagngerrar endurskoðunar. Stefnt er að því á næsta löggjafarþingi að leggja fram frumvörp um eignarráð yfir vatni og gjaldtöku af auðlindum í eigu þjóðarinnar. Þar er meðal annars gert ráð fyrir stofnun auðlindasjóðs. Þá treysti ég því að Alþingi beri gæfu til að samþykkja á yfirstandandi þingi lög sem tryggja þjóðinni langþráðan og sanngjarnan arð af fiskveiðiauðlindinni. Þá sagði hún átök á vettvangi stjórnmálanna valda sér áhyggjum Hatrammari en ég hef áður upplifað á mínum 34 ára ferli sem þingmaður og ráðherra. Þessi átök sagði hún birtast í gríðarlegu vantrausti á mikilvægustu stoðum lýðræðisins og aukinni vantrú á stjórnmálin. Ábyrgðina berum við, kjörnir fulltrúar þjóðarinnar og enn sem komið er hefur okkur að miklu leyti mistekist í þessu mikilvæga verkefni, að endurvinna traust þjóðarinnar. Þetta þykir mér mjög miður. Úr þessu verðum við að bæta á næstu misserum ef ekki á illa að fara. Hægt er að sjá ræðuna í heild sinni hér.
Mest lesið Flutti til Reykjavíkur í dag Innlent Gabríel á bak við lás og slá fram á föstudag Innlent Drífa Snædal snýr aftur Innlent Þrír í haldi vegna stunguárásar: Gabríel Douane einn grunaðra Innlent Ari Edwald leiðir Miðflokkinn í borginni Innlent Bauluðu á Vance af „evrópsku stolti“ Erlent Þetta eru launin sem frambjóðendur geta vænst með kjöri í vor Innlent Málið mögulega fyrir dómstóla: „Ekkert eðlilegt við það að fá símtal frá stjórnendum“ Innlent „Stuðlabergið er bara komið út í sjó“ Innlent Réttað yfir manni sem er grunaður um að nauðga barni og konu sinni Innlent Fleiri fréttir Tók hálftíma að þróa fullkomna eftirlíkingu af rödd Höllu Rektor Háskólans á Bifröst segir af sér Ný Ölfusárbrú farin að taka á sig mynd „Það er ekkert sem tekur við og enginn sem ber ábyrgð“ Drífa Snædal snýr aftur Goddur jarðsunginn Tifandi tímasprengja, oddviti í beinni og breytt Reynisfjara Handtekin fyrir að beita opinberan starfsmann ofbeldi „Þörfin er gríðarleg“ Gabríel á bak við lás og slá fram á föstudag Blíðan haft áhrif á gróður sem lætur þó ekki plata sig Reiknar með einu gosi í viðbót Flutti til Reykjavíkur í dag Málið mögulega fyrir dómstóla: „Ekkert eðlilegt við það að fá símtal frá stjórnendum“ Réttað yfir manni sem er grunaður um að nauðga barni og konu sinni Saka stjórnendur Bifrastar um að hafa beitt nemendur þrýstingi Saka stjórnendur um að þrýsta á nemendur að styðja rektor Biðla enn til almennings sjö árum eftir hvarf Jóns Þrastar Þorsteinn fær áheyrn Hæstaréttar Ari Edwald leiðir Miðflokkinn í borginni Stjórnarformaðurinn verður forstjóri Reykjalundar Íslenska ríkið ræður lobbýista í Washington Jarðskjálftahrinan við Eldey heldur áfram Þetta eru launin sem frambjóðendur geta vænst með kjöri í vor „Vísun máls til siðanefndar getur ekki talist aðför“ Fjórir handteknir í tengslum við líkamsárásir „Stuðlabergið er bara komið út í sjó“ Þrír í haldi vegna stunguárásar: Gabríel Douane einn grunaðra Í kapphlaupi við tímann: Fær ekki lyf sem gæti breytt og lengt líf hennar Stærsti skjálftinn 3,4 Sjá meira