Framkvæmdastjóri LÍÚ: Verið að taka hjartað úr sjávarútvegsráðuneytinu 2. janúar 2012 12:13 Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ.
Framkvæmdastjóra LÍÚ líst illa á fyrirhugaðar breytingar á ráðuneytum. Hann segir það vera eins og taka hjartað úr sjávarútvegsráðuneytinu að flytja Hafrannsóknastofnun frá því. Tilkynnt var um breytingar á ráðuneytinum í lok síðustu viku og hefur Steingrímur J. Sigfússon nú tekið við lyklavöldum í bæði sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu sem og efnahags- og viðskiptaráðuneytinu og mun hann starfa framvegis sem atvinnuvegaráðherra. Friðrik J. Arngrímsson framkvæmdastjóri LÍU óttast að breytingarnar muni koma til með að veikja atvinnulífið en rætt var við hann í morgunþættinum Bítinu á Bylgjunni í morgun. „Nú erum við sem betur fer í fullri vinnu öll sem ræðum hér saman, og ef við myndum bæta við okkur svona fjórum fullum störfum til viðbótar, þá getum við velt fyrir okkur hvort það muni efla það sem við erum að gera eða veikja það," sagði Friðrik. Þá segir hann að verið sé að taka hjartað úr sjávarútvegsráðuneytinu með að flytja Hafrannsóknarstofnun undir Umhverfisráðuneytið eins og breytingin var kynnt í stjórnarsáttmálanum. „Þar með er þetta ráðuneyti orðið nánast ekki neitt og hvernig á ráðherra að taka ákvörðun um þessi mál þegar hann hefur ekki þekkinguna? Mér skilst að hann eigi þá að spyrja umhverfisráðherrann og hann spyr svo Hafrannsóknastofnunina. Þetta dettur engum í hug að gera í nágrannalöndum okkar og ég vona að það verði snúið frá þessu, þetta má einfaldlega ekki gerast."
Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Innlent Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Sjá meira