Í það heilaga á Airwaves 19. október 2012 06:00 Lindsay Levkoff og Dean Diamond eru miklir aðdáendur Of Monsters and Men.
Lindsay Levkoff og Dean Diamond eru á meðal þeirra fjölmörgu erlendu gesta sem sækja Ísland heim yfir Iceland Airwaves-tónlistarhátíðina. Heimsókn Lindsay og Dean er þó sérstök fyrir þær sakir að þau ætla að gifta sig hér á landi þann 1. nóvember og enda brúðkaupsdaginn á tónleikum með Of Monsters and Men, sem er uppáhaldshljómsveit parsins. „Við vorum ekki hrifin af hugmyndinni um hefðbundið brúðkaup og vildum heldur hafa brúðkaupið lítið og innilegt. Þegar hjónaband barst fyrst í tal stakk ég upp á því í gríni að við ættum að hlaupast á brott og gifta okkur á Íslandi. Grínið vatt upp á sig og fljótlega vorum við farin að skipuleggja þessa stund," útskýrir Lindsay. Hún og Dean vinna bæði hjá fyrirtækinu Spark Fun Electronics og þar blómstraði ástin. Þau hafa verið saman frá árinu 2009 og segir Lindsay að sameiginlegur tónlistaráhugi þeirra hafi verið kveikjan að sambandinu. Vinur Lindsay kynnti hana fyrir tónlist Of Monsters and Men fyrir nokkru síðan og varð hún svo heilluð af hljómsveitinni að hún festi strax kaup á breiðskífunni My Head is an Animal. Hún og Dean sóttu stuttu síðar tónleika með sveitinni í Denver. „Þau slógu í gegn. Á leiðinni heim töluðum við mikið um hvað tónleikarnir hefðu verið góðir og að okkur langaði að sjá sveitina spila aftur, helst á Íslandi." Svo virðist sem forlögin hafi látið til sín taka því nokkru eftir tónleikana frétti Lindsay af því að Icelandair ætlaði að hefja beint flug til Íslands frá heimabæ hennar. Hún stakk upp á ævintýraferð til Íslands við Dean og næst þegar hún fór á vefinn sá hún auglýsta pakkaferð á Iceland Airwaves sem hún ákvað að kaupa. „Þá var ekki búið að tilkynna þátttöku Of Monsters and Men og þú getur rétt ímyndað þér hvað við vorum glöð þegar þau bættust við listann." - sara@frettabladid.is
Mest lesið Fólk eigi ekki að vera feimið við sleipiefnið Heilsa „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ Lífið Skósveinarnir hafi ekki þjónað Hitler Bíó og sjónvarp Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Lífið Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei Lífið Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Lífið Allir og amma þeirra á Ítalíu Lífið „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Lífið Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island Lífið Melabúðin fagnar sjötíu árum Lífið Fleiri fréttir Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Bubbi, Herra og þeir allra rauðhærðustu á Írskum dögum Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Muniz skilinn Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Weinstein á spítala eftir hjartabilun Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Kanada tekur þátt í Eurovision Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Leikarapar selur í 101 Grætti nánast alla í athöfninni „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Endaði einn í Færeyjum í sögulegri steggjun Sjá meira