Innlent

Morð í Hafnarfirði - einn í haldi lögreglu

Karl á þrítugsaldri er í haldi lögreglunnar, grunaður um manndráp samkvæmt tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.

Maðurinn, sem var í annarlegu ástandi, kom sjálfur á lögreglustöð í morgun og greindi frá atviki sem hafði átt sér stað á heimili hans í Hafnarfirði.

Framburður hans var um margt óljós en strax var haldið heim til mannsins og þar fannst kona á fertugsaldri. Hún var látin þegar að var komið en á henni voru sjáanlegir áverkar.

Konan var gestkomandi á heimili mannsins en þau höfðu þekkst um hríð. Lagt var hald á eggvopn í þágu rannsóknarinnar. Maðurinn sem nú er í haldi hefur áður komið við sögu hjá lögreglu.

Rannsókn málsins er á frumstigi og ekki er hægt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×