Dýrt að valda tjóni við björgun 6. febrúar 2012 04:00 Björgunarsveitir verða árlega fyrir talsverðum útgjöldum vegna skemmda á bílum sem dregnir eru úr snjósköflum eða forarvilpum. Mynd/Einar Eysteinsson
Björgunarsveitir bera ábyrgð á skemmdum sem verða á bílum sem draga þarf úr snjósköflum og ófærum. Sveitirnar þurfa að borga á annað hundrað þúsund krónur fyrir hvern bíl sem skemmist, ákveði eigandi bílsins að sækja rétt sinn til tryggingarfélagsins. „Það er auðvitað dapurlegt að vera að aðstoða samborgarana, í umboði lögreglunnar, og fá svo á sig kostnaðinn ef eitthvað gerist,“ segir segir Gunnar Stefánsson, sviðsstjóri björgunar- og slysavarnarsviðs hjá Slysavarnafélaginu Landsbjörgu. Verði tjón á bíl sem björgunarsveitir draga úr skafli eða ófæru á eigandi bílsins kröfu á björgunarsveitina. Sveitirnar eru tryggðar fyrir tjóninu, en þurfa að borga sjálfsábyrgð sem er yfirleitt á bilinu 100 til 170 þúsund krónur, segir Gunnar. Þessi kostnaður fellur á þá björgunarsveit sem á bílinn sem veldur tjóninu. Gunnar segir kostnaðinn geta sett öll áform björgunarsveita í uppnám, sérstaklega minni sveita sem hafi oft takmarkaða möguleika til að fjármagna starfsemi sína. Hann segir að vegna þessarar áhættu kjósi sumar björgunarsveitir frekar að bjarga fólki úr föstum bílum og skilja bílana eftir. Það sé þó á endanum ákvörðun hvers bílstjóra á bílum björgunarsveitanna. Menn velti þessum möguleika óneitanlega fyrir sér. Landsbjörg hefur ítrekað óskað eftir því við stjórnvöld og þingmenn að björgunarsveitirnar fái undanþágu í lögum svo tjón af þessu tagi falli ekki á sveitirnar séu þær við björgunarstörf, án þess að það hafi náð inn í nefndir þingsins, hvað þá lengra. - bj
Mest lesið Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ Innlent Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Innlent Ákærður fyrir að hafa stungið tvo gyðinga Erlent Fleiri fréttir Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Svör Kristrúnar minni meira á Keir Starmer en Mette Fredriksen Flugvallarstæði Hvassahrauns á mesta áhættusvæði hraunflæðis Svæðisskrifstofur Guðmundar Inga líklega slegnar út af borðinu Sjá meira