Vildu loka Þjóðleikhúsinu 6. febrúar 2012 00:01 Þjóðleikhúsið. fréttblaðið/valli
Fulltrúar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á Íslandi gerðu það að tillögu sinni um það leyti sem fjárlagagerð stóð yfir haustið 2009 að loka ríkisreknum menningarstofnunum í sparnaðarskyni. Þjóðleikhúsið var nefnt sérstaklega á nafn og skyldi lokunin standa í þrjú ár. Tillögu AGS var alfarið hafnað. Þetta kom fram í máli Katrínar Jakobsdóttur, mennta- og menningarmálaráðherra, á Alþingi á föstudag þegar hún flutti munnlega skýrslu fyrir þinginu um málefni safna hér á landi. „Og þetta var nefnt í fullri alvöru," sagði Katrín. Í viðtali við Fréttablaðið útskýrir ráðherra að þegar hugmyndin var orðuð við íslensk stjórnvöld hefðu fulltrúar AGS í sjálfu sér ekki gert sérstakan greinarmun á menningarstofnunum sem þeir töldu að mætti loka í þrjú ár í sparnaðarskyni. „Þetta var meðal ýmissa hugmynda þeirra um niðurskurð og samdrátt, og nefnt sem fórn sem gæti þurft að færa," segir Katrín. „Almennt var það nefnt sem lausn að loka stofnunum tímabundið." Að sögn Katrínar voru allar menningarstofnanir sem reknar eru af íslenska ríkinu undir í hugmyndinum AGS, til dæmis höfuðsöfnin Listasafn Íslands og Þjóðminjasafnið. Af hálfu íslenskra stjórnvalda hafi slíkar lokanir þó aldrei komið til greina. Þessar hugmyndir AGS sýna vel hvers konar áskorun stjórnvöld stóðu frammi fyrir þegar niðurskurðarhnífurinn fór á loft eftir hrunið en Katrín nefnir að aðgerðir eins og þessar hefðu haft gríðarlega neikvæð áhrif á íslenskt samfélag, og öðruvísi væri yfir að líta hér á landi ef þessum hugmyndum AGS hefði verið gefinn frekari gaumur. Hugmyndunum hafi hins vegar verið hafnað samstundis og ekki ræddar sem möguleiki við aðhaldsaðgerðirnar sem þá gengu í garð. Við Þjóðleikhúsið starfa milli 400 og 500 manns á hefðbundnu leikári. Í ársskýrslu leikhússins fyrir árið 2010 kemur fram að aðsókn jókst fimmta árið í röð; tæplega hundrað þúsund manns sóttu 24 sýningar. Á fjárlögum ársins 2010 var fjárveiting til Þjóðleikhússins rúmlega 700 milljónir króna en 647 árið 2011. Á fjárlögum þessa árs eru milljónirnar 679. - shá
Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Innlent Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ Innlent Fleiri fréttir Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Sjá meira