Vinstri grænir leggjast gegn heræfingum í Elliðaárdal Jón Hákon Halldórsson skrifar 7. maí 2012 14:00 Sóley Tómasdóttir og félagar hennar í VG eru á móti því að Boot Camp fái aðstöðu í Elliðaárdal.
Vinstri grænir í Reykjavíkurborg leggjast gegn því að Boot Camp fái aðstöðu í gamla húsnæði Fornbílaklúbbsins neðst í Elliðaárdal fyrir æfingaaðstöðu. Fréttablaðið greindi frá því á síðasta ári að Sjöstjarnan ehf, félag Skúla Gunnars Sigfússonar, sem oft er kenndur við Subway, hefði keypt hús af Fornbílaklúbbi Reykjavíkur. Hann leigði það til fyrirtækisins BootCamp og verður það notað undir líkamsræktarstöð. Kaupin voru háð þeim fyrirvara að borgaryfirvöld samþykki breytingar á deiliskipulagi á lóðinni. Samkvæmt núgildandi deiliskipulagi má eingöngu vera safn í húsinu. Þegar fyrirspurn frá Ingimar Ingimarssyni lögmanni Sjöstjörnunnar var afgreidd í skipulagsráði undir lok síðasta árs lét Torfi Hjartarson, fulltrúi VG, í nefndinni bóka mótmæli vegna breytinganna. Torfi sagði að ekki færi vel á því að koma fyrir á þessu svæði líkamsrækt með herbúðarsniði. „Vinstrihreyfingin-grænt framboð telur afar óheppilegt hvernig staðið var að samningum án fyrirvara fyrir hönd almennings þegar á sínum tíma var ráðist í byggingu sýningarhúss fyrir fornbíla í Elliðaárdal. Á móti kemur að almannavald í borginni setur starfsemi á þessum stað skorður með skipulagi. Vinstrihreyfingin-grænt framboð telur það skyldu borgaryfirvalda að standa vörð um umhverfi, lífríki og útivist í dalnum. Ekki fer vel á því að koma fyrir á þessu svæði líkamsrækt með herbúðasniði, hávaða og yfirbragði sem því fylgir, bílastæðaþröng og mikilli umferð bíla. Finna þarf húsum á svæðinu heppilegra hlutverk í sátt við mannlíf, sögu og náttúrulegt umhverfi," segir orðrétt í bókuninni. Sóley Tómasdóttir, borgarfulltrúi VG, sagði við Vísi í morgun að frá þessum tíma hafi verið unnið að deiliskipulagsbreytingu sem Vinstri grænir hafi mótmælt bæði í borgarráði og borgarstjórn af þeim ástæðum sem fram komu í bókuninni. Dagur B. Eggertsson, formaður borgarráðs, segir að tillagan hafi ekki verið afgreidd í borgarstjórn en það verði gert fljótlega.
Mest lesið Glórulaust að veginum hafi ekki verið lokað fyrr Innlent Brotist inn og gert sig heimakominn Innlent Bondi vikið úr embætti dómsmálaráðherra Erlent Ljósmyndarinn lifir ekki á „tagginu“ einu saman Innlent Kjartan Guðmundsson er látinn Innlent Framsókn næði ekki inn á þing Innlent Innanlandsflugi aflýst vegna veðurs Innlent Íslendingur tók þátt í að gera tunglskotið að veruleika Innlent Þáttaskil í sögu Lýðskólans á Flateyri Innlent Gerði grín að Macron og eiginkonu hans með frönskum hreim Erlent Fleiri fréttir Glórulaust að veginum hafi ekki verið lokað fyrr Brotist inn og gert sig heimakominn Ljósmyndarinn lifir ekki á „tagginu“ einu saman Framsókn næði ekki inn á þing Þáttaskil í sögu Lýðskólans á Flateyri Innanlandsflugi aflýst vegna veðurs Hryðjuverkamálið á dagskrá Landsréttar í maí Umferðin gengur hægt en stóráfallalaust fyrir sig Íslendingur tók þátt í að gera tunglskotið að veruleika Oddvita sparkað af listanum og segir af sér formennsku Sendiherrum og skrifstofustjórum stokkað Ísland, Grænland og Færeyjar saman hefðu sterka samningsstöðu Kjartan Guðmundsson er látinn Sjálfstæðismenn og óháðir staðfesta listann í Vogum New York Times fjallar um íslenskar pylsur: Ekkert jafnist á við eina með öllu Stjórnstöð í Kópavogi sem líkist geimferðamiðstöð „Leyfið grínurunum aðeins að eiga sviðið í dag“ Vilja fá valdið aftur Hátt í sextíu prósent óánægð með störf borgarstjóra „Ég táraðist í flugvélinni“ Finna aukna fordóma: Syninum sagt að „drulla sér aftur upp í tré“ Yfirgaf Sjálfstæðisflokkinn og leiðir Miðflokkinn í Borgarbyggð Enn ein veðurviðvörunin yfirvofandi í nótt Síðasti séns til að skrá kílómetrastöðuna Páskaeggja-„hefðinni“ var komið á í Covid Gestum neyðarskýla fækkar verulega milli ára Ráðherra vissi af gabbi um kílómetragjald fyrir fram Icelandair á leið til Möltu og heimilislausum fækkar Segja Skúla Tómas hafa hneppt móður þeirra í „lyfjafjötra“ Sárt fyrir aðstandendur að enginn taki ábyrgð Sjá meira