Erlent

Bresk kona vill losna við hægri hönd sína

mynd/getty
Bresk kona íhugar nú að láta fjarlægja hægri hönd sína. Hún vill fá vélræna gervihendi í staðinn en hún missti mátt í höndinni eftir að hafa lent í bílslysi.

Nicola Wilding slasaðist alvarlega á hálsi og öxl í bílslysi fyrir 13 árum. Síðan þá hefur hún verið lömuð í hægri hendi.

Wilding hefur gengist undir fjölda skurðaðgerða á síðustu árum. Með hjálp tauga ígræðslna og sjúkraþjálfunar hefur hún öðlast mátt í upphandlegg en hönd hennar er enn lömuð.

Nú sækist hún eftir því að læknar fjarlægi höndina. Hún segir að höndin sé tilgangslaus og þvælist fyrir henni.

„Höndin mín er dauð," sagði Wilding í viðtalið við BBC. „Taugarnar eru ónýtar. Hún þvælist fyrir mér, tilgangslaus. Ég hef sest á hana, brennt hana og skellt hurðum á hana. Ég myndi ekki sakna hennar."

Wilding vill fá vélræna hendi í staðinn. Hún hefur nú þegar haft samband við lækni sem er reiðubúinn að framkvæma aðgerðina.

Heppnist aðgerðin munu taugaendar Wildings tengjast gerviliðnum. Hún myndi því hafa stjórn á hendinni í fyrsta sinn 13 ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×