Biðst undan auknum verkefnum 3. janúar 2012 05:00 Forseti bæjarstjórnar gefst upp á óánægju fulltrúa minnihlutans með tvöföldun starfshlutfalls forsetans. „
Það er ekki þess virði að berjast fyrir fyrirkomulagi sem kostar forseta fjárhagslegar fórnir og hugnast ekki nema helmingi bæjarstjórnar,“ segir Sigurborg Kr. Hannesdóttir, forseti bæjarstjórnar Grundarfjarðar, í bókun á síðasta fundi bæjarstjórnar þar sem hún baðst undan auknum starfsskyldum. Sjálfstæðismenn í bæjarstjórninni sögðust ekki vita í hverju þau auknu verkefni væru fólgin sem urðu til þess fyrir um ári að laun forseta bæjarstjórnar voru tvöfölduð. „Eins og berlega hefur komið í ljós þá fór þessi launahækkun verulega fyrir brjóstið á okkur, sérstaklega í ljósi þess að við höfum staðið vel við bakið á ykkur í þeim niðurskurði sem bæjarfélagið óhjákvæmilega hefur þurft að ganga í gegnum,“ bókuðu fulltrúarSjálfstæðisflokks. Sigurborg, sem er fulltrúi meirihluta L-lista Samstöðu, sagði að með viðbótarverkefnum hafi vinna forseta farið upp í 40 til 50 prósenta starf á vetrarmánuðum. Laun bæjarstjórans hafi verið lækkuð sem nam viðbótargreiðslu til hennar. „D-listi hefur ítrekað lýst óánægju sinni með þetta fyrirkomulag og bendir flest til þess að hann muni halda því áfram út kjörtímabilið,“ bókaði forsetinn sem baðst undan hinum auknu verkefnum. Hún kvaðst gera ráð fyrir að bæjarráð taki upp starfslýsingu og kjör bæjarstjóra. - gar
Mest lesið Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Fleiri fréttir Kristrún hafi staðið sig best en Inga verst Þögul sem gröfin um meintan trúnaðarbrest Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Deilt um orðalag á kjörseðli, trúnaðarbrestur og vinsældir ráðherra Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Miðflokkurinn úr leik í Árborg Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi „Þetta er erfiður mánudagur“ Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Sjá meira