Argentína á toppinn í Suður-Ameríku Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 8. september 2012 14:30 Messi fagnar marki sínu í gær. Nordic Photos / Getty Images
Það var víðar spilað í undankeppni HM 2014 en í Evrópu í gær. Í nótt fóru fram fjölmargir leikir í Ameríkuálfunum. Í Suður-Ameríkuriðlinum tyllti Argentína sér á toppinn með góðum 3-1 heimasigri á Paragvæ. Argentína er með þrettán stig á toppi riðilsins, einu meira en Síle og Ekvador. Þetta var sjötti sigur Argentínumanna í röð en þeir Angel Di Maria, Gonzalo Higuain og Lionel Messi komust allir á blað í leiknum. Messi skoraði beint úr aukaspyrnu og er það í fyrsta sinn sem hann gerir það í landsleik. Messi hefur oft verið gagnrýndur fyrir frammistöðu sína með landsliðinu en hann hefur verið í miklum ham að undanförnu og skorað alls tíu mörk í síðustu sex landsleikjum. Kólumbía vann 4-0 sigur á Úrúgvæ og einn heitasti framherji heims, Falcao, skoraði tvívegis fyrir sína menn. Úrúgvæ datt niður í fjórða sætið með tapinu en Kólumbía er í því fimmta. Í Mið- og Norður-Ameríku máttu Bandaríkjamenn sætta sig við 2-1 tap fyrir Jamaíku. Jürgen Klinsmann er þjálfari bandaríska liðsins sem náði sér aldrei á strik í leiknum. Spilað er í þremur riðlum og tvö efstu úr hverjum komast áfram í lokaumferð undankeppninnar þar sem sex lið spila í einum riðli. Ekki er búist við öðru en að sterkustu lið álfunnar, þar með talið Bandaríkin, eigi greiða leið þangað.Úrslit næturinnar:Suður-Ameríka: Kólumbía - Úrúgvæ 4-0 Ekvador - Bólivía 1-0 Argentína - Paragvæ 3-1 Perú - Venesúela 2-1Mið- og Norður-Ameríka:A-riðill: Jamaíka - Bandaríkin 2-1 Gvatemala - Antígva og Barbúda 3-1B-riðill: El Salvador - Gvæjana 2-2 Kostaríka - Mexíkó 0-2C-riðill: Kúba - Hondúras 0-3 Kanada - Panama 1-0
HM 2014 í Brasilíu Mest lesið „Stjörnufólk er pirrað“ Körfubolti Sjáðu öll tilþrif Pargo: „Aldrei séð annað eins á fjölum á Íslandi“ Körfubolti Tætir í sig færslu Salah: „Liverpool FC ekki Salah FC“ Enski boltinn Tárvot sigurstund bræðranna frá Grindavík Körfubolti Mikill skellur fyrir Skagamenn sem leita á náðir KSÍ Íslenski boltinn Hörð gagnrýni á Alfreð: „Hann hefur ekkert lært“ Handbolti Myndaveisla: Sigurhátíð Grindvíkinga í Síkinu Körfubolti Styrktarleikur í Kópavogi: „Ofboðslega verðmætt og gefur okkur mikið“ Íslenski boltinn Sjáðu sigurmark Havertz sem slapp við rauða spjaldið Enski boltinn Guardiola hætti með Manchester City eftir tímabilið Enski boltinn Fleiri fréttir Allir leikmenn fá aðgang að kvensjúkdómalækni Geta tryggt sig úr fallbaráttunni í kvöld Mikill skellur fyrir Skagamenn sem leita á náðir KSÍ Ronaldo á sitt sjötta HM með ógnarsterkum hópi Sammála um níu af ellefu leikmönnum tímabilsins Ekki sáttur með hugarfar fyrirliðans Horfir með fjölskyldunni og verður mesti stuðningsmaður sögunnar Segja Maresca taka við af Guardiola Styrktarleikur í Kópavogi: „Ofboðslega verðmætt og gefur okkur mikið“ Sjáðu sigurmark Havertz sem slapp við rauða spjaldið Tætir í sig færslu Salah: „Liverpool FC ekki Salah FC“ Dagskráin í dag: Tveir gífurlega mikilvægir leikir Hylltu Glódísi Perlu og liðsfélaga hennar Neymar fer á HM Arsenal einu skrefi frá Englandsmeistaratitli Guardiola hætti með Manchester City eftir tímabilið Viðurkenna mistök og markið hefði aldrei átt að standa Segir starf Jóhannesar ekki í hættu Hansi Flick framlengir Mourinho tekur við Real Madrid en fyrirliðinn kveður Haaland verður víkingur í teiknimynd Salah eigingjarn og skuli hent út úr hópnum Sjáðu Bruno jafna metið og von West Ham dofna enn Sjáðu mark Gylfa frá miðju, Sigurjón stöðva KR og drama á Hlíðarenda Brjálaður eftir ranga skiptingu og sýndi sönnunargögn Síðasta verk Salah að sparka Slot? Orri Steinn fram úr Eiði Smára „Hælspyrnur hér og þar og taka gríðarlega sénsa“ „Ekki viss hvort ég skoraði eða ekki“ „Hæð og þyngd er ekki allt í fótbolta“ Sjá meira