Vilja sameina menningastofnanir á Akureyri - Magnús Geir kallaður til 15. mars 2012 15:47
Leikfélag Akureyrar hefur leitað til Magnúsar Geirs Þórðarsonar, leikhússtjóra Borgarleikhússins, í viðleitni við að sameina tímabundið samvinnu milli LA, Borgarleikhússins og Menningarfélagsins Hofs. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Akureyrarstofu. Þar segir ennfremur: „Þannig gæti félagið ráðist í umfangsmiklar sparnaðaraðgerðir þegar í stað sem felast m.a. í því að nýta sameiginlega þann mannauð sem LA og Menningarhúsið Hof hafa yfir að ráða og minnka þannig yfirbyggingu LA tímabundið. Á þann hátt nýttist opinbert framlag betur beint í framleiðslu leiklistar fremur en yfirbyggingu. Áætlað er að með þessum aðgerðum félagsins og aðgerðum Akureyrarbæjar yrði LA því sem næst skuldlaust eftir u.þ.b. 16 mánuði eða í upphafi leikársins 2013-2014. Á þeim tímapunkti væri LA aftur komið í stöðu til að ráða sér öflugan leikhússtjóra sem getur leitt félagið til nýrrar sóknar öllum til heilla án þeirra miklu skulda sem félagið ber nú og standa allri starfsemi fyrir þrifum." Hér fyrir neðan má lesa tilkynningu frá Akureyrarstofu. Hér má lesa umfjöllun vikublaðsins Akureyri um málið. Vegna fréttar sem birtist í morgun í Akureyri Vikublaði um málefni Leikfélags Akureyrar viljum við undirrituð taka eftirfarandi fram: Akureyrarstofa og stjórn hennar hafa í samvinnu við stjórn LA leitað til fjölmargra aðila um mögulegar lausnir á þeim mikla rekstrarvanda sem félagið stendur frammi fyrir eftir gríðarlegan hallarekstur síðustu ára. Þannig var meðal annars leitað til Magnúsar Geirs Þórðarsonar leikhússtjóra Borgarleikhússins, ekki síst vegna fyrri starfa hans fyrir LA og þekkingu á markaðsaðstæðum á Akureyri. Í samvinnu við hann var mótuð hugmynd sem fól í sér tímabundna, samningsbundna og ítarlega samvinnu milli LA, Borgarleikhússins og Menningarfélagsins Hofs. Hugmyndin snýr að því að gera LA kleift að standa fyrir góðu framboði og framleiðslu á metnaðarfullri leiklist á Akureyri á næsta starfsári um leið og ráðin er bót á rekstrarvanda LA. Þannig gæti félagið ráðist í umfangsmiklar sparnaðaraðgerðir þegar í stað sem felast m.a. í því að nýta sameiginlega þann mannauð sem LA og Menningarhúsið Hof hafa yfir að ráða og minnka þannig yfirbyggingu LA tímabundið. Á þann hátt nýttist opinbert framlag betur beint í framleiðslu leiklistar fremur en yfirbyggingu. Áætlað er að með þessum aðgerðum félagsins og aðgerðum Akureyrarbæjar yrði LA því sem næst skuldlaust eftir u.þ.b. 16 mánuði eða í upphafi leikársins 2013-2014. Á þeim tímapunkti væri LA aftur komið í stöðu til að ráða sér öflugan leikhússtjóra sem getur leitt félagið til nýrrar sóknar öllum til heilla án þeirra miklu skulda sem félagið ber nú og standa allri starfsemi fyrir þrifum. Að ofansögðu má ljóst vera að lýsingin á hugmyndinni sem fram kemur í stuttu viðtali við formann stjórnar LA í vikublaðinu Akureyri er ekki nægjanlega upplýsandi og ekki er rétt að hugmyndin feli í sér að öllu starfsfólki LA verði sagt upp. Hið rétta er að hugmyndin gerir ráð fyrir að nauðsynleg þekking starfsmanna verði sameinuð á einum stað og þannig verði beinlínis slegið skjaldborg um faglega þekkingu sem er til staðar hjá LA. Einnig er rangt sem fram kemur í fréttinni að um tilboð frá Borgarleikhúsinu hafi verið að ræða: Hið rétta er að Magnús Geir og Borgarleikhúsið svöruðu ósk Akureyrarbæjar um aðstoð og hugmyndirnar voru án skuldbindinga af allra hálfu. Það er hins vegar rétt sem fram kemur í fréttinni að áfram er unnið að því í samvinnu Leikfélagsins og Akureyrarbæjar að finna leiðir sem hafa það að markmiði að koma rekstri LA aftur á réttan kjöl. Halla Björk Reynisdóttir, formaður stjórnar Akureyrarstofu Þórgnýr Dýrfjörð, framkvæmdastjóri Akureyrarstofu
Mest lesið Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent Fyrrverandi forstjóri FBI ákærður fyrir líflátshótun í garð Trump Erlent Afhroð Rússa í Malí: Vígamenn segjast stjórna stórum hluta landsins Erlent Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Innlent „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Innlent Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Innlent Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Innlent Fleiri fréttir Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Boða fjölgun flugferða á sama tíma og bátsferðir voru felldar niður Pílagrímaflug Air Atlanta á fullri ferð þrátt fyrir átök Urðu fyrir vonbrigðum með húsnæðispakka tvö Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Hnífstunga í heimahúsi í Árbæ Kvöddu þjóðargersemi með sögum og söng Fróaði sér úti og var gripinn með teiknað barnaníðsefni Eldgos enn líklegasta sviðsmyndin Meirihluti oddvita í glænýju hlutverki Jón Pétur Zimsen biðst afsökunar á færslu sinni Lögreglan á Austurlandi kom að handtöku fimmtíu Bó borinn til grafar: „Þegar kóngurinn kallar lætur maður sig ekki vanta“ „Botninum hefur verið náð“ Segja borgaryfirvöld hafa brugðist íbúum algjörlega Húsnæðispakki 2 kynntur og ófremdarástand hjá Herjólfi Boða allt að 1.400 íbúðir á lóðum ríkisins og í húsum þess „Nítján tíma ferðalag til að keppa sextíu mínútur í handbolta“ Bein útsending: Kynna húsnæðispakka 2 Grunar sterklega að hinn látni sé ferðamaðurinn sem leitað var að Sjá meira