Lífið

Nakin á plötuumslaginu

MYND / COVER MEDIA
Söngkonan Christina Aguilera sýndi aðdáendum sínum á Twitter nýja umslagið fyrir plötuna Lotus fyrir helgi.

"Hér er hún! Platan kemur út 13. nóvember. XoXtina," skrifaði Christina með myndinni.

Christina er gjörsamlega nakin á plötuumslaginu og stendur í miðju lótusblómi. Síða, ljósa hárið þekur brjóst hennar og skært ljós hylur það heilagasta. Þessi mynd er lýsandi fyrir plötuna sem Christina hefur kallað endurfæðingu.

"Ég er búin að fara í gegnum mikið síðan ég gaf út mína seinustu plötu, verandi dómari í The Voice og búin að ganga í gegnum skilnað. Þetta er allt endurfæðing fyrir mér," segir Christina.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.