Nýja stjórnmálaaflið skal heita Björt framtíð 6. janúar 2012 13:47
Björt framtíð (BF) er nafn á nýjum stjórnmálaflokki, sem Guðmundur Steingrímsson og Besti flokkurinn ásamt einstaklingum um land allt, hafa unnið að undanfarið. Efnt var til nafnasamkeppni. Tæplega 2000 manns sendu inn tillögur samkvæmt tilkynningu frá hinu nýja framboði. Sex einstaklingar sendu inn þá tillögu sem var fyrir valinu, þeir Birnir Sveinsson, Ólafur Sigurðsson, Kjartan Már Ómarsson, Sigurjón Sigurgeirsson, Egill Egilsson og Runólfur Þór Andrésson. Í tilkynningu frá flokknum segir að nafnið Björt framtíð sé nafn sem nái vel utan um markmið hinna nýju stjórnmálasamtaka, að vinna að bjartri framtíð í stórum málum og smáum. Svo segir orðrétt í tilkynningunni:Björt framtíð er ekki sjálfgefin og fjölmargt getur ráðið úrslitum: Undirstöður efnahagslífsins þurfa að vera stöðugar svo hægt sé að byggja upp góð og varanleg lífskjör um land allt, auðlindirnar þurfa að skila þjóðinni sjálfbærum arði, lýðræðið þarf að vera virkt og frjótt, velferðarkerfið og menntakerfið hið besta, atvinnulífið fjölbreytt, og síðast en ekki síst þarf hin þjóðfélagslega umræða að vera sanngjarnari og uppbyggilegri. Það er áhyggjuefni yngri sem eldri Íslendinga að kannanir sýna t.d. að margt ungt fólk íhugar að flytja varanlega til annarra landa, væntanlega vegna þess að það telur framtíðina ekki nógu bjarta hér á landi. Þessu vill Björt framtíð breyta. Auk þess vísar nafn samtakanna til þeirra viðfangsefna í umhverfismálum sem blasa við á heimsvísu og kalla á afgerandi viðbrögð.Næst á dagskrá hjá Bjartri framtíð - BF er að halda formlegan stofnfund þar sem einstaklingar munu skipta með sér verkum og reglur félagsins verða ákveðnar. Að því loknu hefst málefnavinna á grunni hugsjóna flokksins um græna, frjálslynda, alþjóðasinnaða, lýðræðislega og umfram allt bjarta framtíð.
Mest lesið Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Trump hjólar í páfa Erlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Fleiri fréttir Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Miðflokkurinn úr leik í Árborg Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Bilun í Herjólfi Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjá meira