"Hernaðaraðgerðir gegn Íran eru raunhæfur valkostur" 4. mars 2012 22:00 Obama ávarpaði fundargesti AIPAC ráðstefnunnar í dag. mynd/AP
Barack Obama, Bandaríkjaforseti, sagði í dag að hernaðaraðgerðir gegn Íran af hálfu Bandaríkjanna séu raunhæfur valkostur. Obama mun funda með Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísrael á morgun og munu þeir ræða um ástandið í Íran. Obama lét ummælin falla á ráðstefnu AIPAC (e.American Israel Public Affairs Committee) í dag. Hann sagðist vera reiðubúinn að beita ítrustu aðgerðum til að koma í veg fyrir að Íran þrói kjarnorkuvopn. „Ég hef sagt það áður og segi það á ný. Ég mun beita öllum úrræðum til að koma í veg fyrir að Íranir þrói kjarnavopn," sagði Obama. Bandaríkjaforseti varaði þó við stríðsáróði og sagði að slík orðræða sé einungis til þess fallin að hefta samningaferli. Með ummælunum vonast Obama til að styrkja stöðu sína fyrir forsetakosningar 6. nóvember næstkomandi. Obama hefur verið harðlega gagnrýndur fyrir linkind gagnvart Íran. Miklar deilur hafa sprottið upp á síðustu mánuðum vegna kjarnorkuáætlunar Írana. Yfirvöld í Tehran, höfuðborg Írans, þvertaka fyrir að þróun kjarnavopna sé tilgangur áætlunarinnar. Töluverð spenna er á svæðinu og eru hækkanir á heimsmarkaðsverði olíu sagðar tengjast málinu. Úrlausn á málinu er afar mikilvæg fyrir Obama því endurkjör hans byggir á mörgu leyti á úrbótum á efnahagskreppu Bandaríkjanna og er farsæll endir á deilunum við Íran nauðsynlegur liður í því.
Mest lesið Taldi upp nýlendur sem ætti að endurheimta Erlent Trump sagður hlynntur afsali lands Erlent Fólk búi í hesthúsunum: „Þarna kom að því sem við höfum varað við í mörg ár“ Innlent Kristinn Örn lést eftir hitaslag á Spáni Innlent Hlaupa sex maraþon á jafnmörgum dögum í jakkafötum Innlent Fundurinn sigur fyrir Pútín: Rauður dregill í stað fangabekkjar í Haag Erlent Hitamet aldarinnar slegið Veður Segir leigubílstjórastéttina hafa verið „eyðilagða“ Innlent Rjómablíða hætt að teljast til tíðinda fyrir austan Veður Veita útlendingum greiðari aðgang að heilbrigðiskerfinu en er skylt Innlent Fleiri fréttir Trump sagður hlynntur afsali lands Taldi upp nýlendur sem ætti að endurheimta Fundurinn sigur fyrir Pútín: Rauður dregill í stað fangabekkjar í Haag Selenskí mun funda með Trump Fundi forsetanna lokið: Ekkert samkomulag um vopnahlé Umfangsmikil gagnárás Úkraínumanna Forsetarnir tveir funda Sextug kona lést í lestarslysi í Danmörku Maður látinn eftir skotárás við mosku í Örebro Obama blæs Demókrötum byr í brjóst Mætti í sovétbol til fundarins í Alaska Komu sér ekki saman um aðgerðir gegn plastmengun Ráðist á Palestínumenn á Vesturbakkanum Gervigreindin býr til tvö ný sýklalyf gegn ónæmum bakteríum Segir 75 prósent líkur á árangursríkum fundi í kvöld Fyrsta mannfall Rússa í umsátri í Malí Hringdi í norskan ráðherra til að ræða friðarverðlaun Nóbels Buffalo-morðinginn kvartar yfir skorti á þeldökku fólki „Gervigreindargeðrof“ hrellir sálfræðinga Samþykkti landtökubyggð til að fyrirbyggja palestínskt ríki Grindavík fær nafna í smástirnabeltinu Borgarstjóri Anchorage segir allt til reiðu fyrir leiðtogafund Nýr talnaspekingur Trump við þinghúsið þegar ráðist var á það Hækkun sjávarmáls ógnar styttum Páskaeyju Starmer og Selenskí funda í dag Trump tilkynnti um næstu heiðursfélaga Kennedy-miðstöðvarinnar Melania Trump hótar lögsókn á hendur Hunter Biden Vilja afvopna einangraða og veikburða Hezbollah-liða Sendu tvö herskip að umdeildu rifi eftir ásiglingu Kínverja Sprengingar eftir eldingu Sjá meira