Innlent

Hefðbundinn tælenskur konungsdans í Kópavogi

Jóhanna Margrét Gísladóttir skrifar
Það tekur tælenska dansara yfir tvo tíma að klæða sig í búningana sína sem eru saumaðir utan um þá. Nítján tælenskir nemendur eru nú hér á landi til að kynna hefðbundinn tælenskan konungsdans fyrir Íslendingum.

Nemendurnir koma úr listadeildum þriggja háskóla í Tælandi og er það tælensk íslenskafélagið sem stendur fyrir komu þeirra hingað til lands.

„Við tælensk-íslenska félagið langar að sýna tælenska menningu á Íslandi," segir Petchada Khongchumcheun.

„Sumir af þessum dönsum sýna sögur, og tælenska hefð, til dæmis einn dansinn var á tímabili bara sýndur í konungshöllinni í Tælandi en hann verður sýndur hérna í kvöld," segir Gyða Björg Hilmarsdóttir hjá Tælensk-íslenska félaginu.

Flokkurinn sérhæfir sig í aldagamalli danshefð, svokölluðum Kohn dönsum þar sem látbragð og handahreyfingar segja sögurnar.

Búningarnir og skrautmunir dansaranna eru mjög litskrúðugir og tekur það dansarana um tvær klukkustundir að gera sig tilbúna fyrir sýningu þar sem búningurinn er bókstaflega saumaður utan um þá.

„Búningurinn er partur af þér, þess vegna er hann saumaður á þig svo það allt á sínum stað," segir Gyða.

Flokkurinn hélt fyrstu sýninguna af þremur í Salnum í Kópavogi í dag, en hinar sýningarnar verða klukkan sjö í kvöld og svo í Sandgerði klukkan eitt á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×