Innlent

Ferðamaður fauk og slasaðist

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Björgunarsveitamenn að störfum.
Björgunarsveitamenn að störfum.
Ferðamaður staddur við Álftavatn að Fjallabaki slasaðist að því er virðist illa á mjöðm þegar hann fauk í roki snemma í kvöld. Í tilkynningu sem Slysavarnarfélagið Landsbjörg sendi klukkan tuttugu mínútur í tíu í kvöld segir að björgunarsveitarhópar sem staddir voru í nágrenni séu nýkomnir á staðinn og hafa útbúið sjúklinginn til flutnings.

Reiknað er með að honum verði ekið niður í Fljótshlíð í sjúkrabíl. Aksturinn tekur þó líklega einar 2 klukkustundur enda um hálendisveg að fara. Ekki var talið unnt að koma þyrlu á staðinn vegna veðurs. Frekar slæmt veður er nú á miðhálendinu eins og spáð hafði verið. Hópar björgunarfólks í Hálendisvakt björgunarsveita eru staðsettir á fimm stöðum á hálendinu til aðstoðar ef á þarf að halda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×