Fjörutíu milljóna klúbbhús frá góðærinu er til sölu 6. október 2012 09:00 Innréttingarnar eru „stórglæsilegar“ að mati Miðbæjar og telst eignin vera kjörin piparsveinaíbúð eða klúbbhús. „
Við vorum nokkrir félagar sem áttum þessa húseign og erum búnir að selja hana. Við áttum golfhermi saman inni í þessu húsi og spiluðum golf þarna og horfðum á enska boltann. Það var nú ekkert merkilegra en það,“ segir Ragnar Gíslason, viðskiptafræðingur og löggiltur endurskoðandi. Hann var einn af eigendum húseignar að Nýbýlavegi í Kópavogi sem nú er til sölu hjá fasteignasölunni Miðbæ. Hún hefur vakið mikla athygli enda auglýst sem tilvalin piparsveinaíbúð eða klúbbur fyrir „góðan hóp manna/kvenna“. Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins festu Ragnar og félagar hans kaup á klúbbnum í gegnum félagið NY 19 ehf á tímum góðærisins. Núna er það félagið Efniviður-Landmark ehf. sem á klúbbinn, en það er í eigu Magnúsar Einarssonar fasteignasala. Í lýsingu Miðbæjar segir að um 188,5 fermetra íbúð eða klúbb sé að ræða sem búið sé að innrétta á stórglæsilegan hátt. Steinteppi er á gólfum, veggir eru klæddir með viðarveggklæðningum og plexígleri, tvöfaldur ísskápur með vínkæli er í eldhúsinu og baðherbergið klætt með granít. Eignin er skráð með 30 fm bílskúr en í dag er þar herbergi með golfhermi. Innréttingarnar, þar sem fjólublár litur kemur víða við sögu, hafa einnig vakið athygli. „Þær voru flottar og eru flottar,“ segir Ragnar um innréttingarnar. „Við sjáum ekkert eftir því. Við gerðum þetta bara vel.“ Samkvæmt upplýsingum frá Miðbæ er vonast til að eignin seljist á um fjörutíu milljónir króna. freyr@frettabladid.is
Mest lesið Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Lífið Fólk eigi ekki að vera feimið við sleipiefnið Heilsa Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Lífið „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ Lífið Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei Lífið Skósveinarnir hafi ekki þjónað Hitler Bíó og sjónvarp „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Lífið Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Lífið Allir og amma þeirra á Ítalíu Lífið Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island Lífið Fleiri fréttir Rauðhærðasti Íslendingurinn fundinn Stjörnum prýddur gestalisti Swift og Kelce Krakkatía vikunnar: Tindur, stríð og letibikkja Melabúðin fagnar sjötíu árum „Þú ert greinilega manneskja sem hefur strögglað mikið andlega“ „Það er gaman að gera erfiða hluti“ Taylor Swift og Travis Kelce eru gift Eins og að vera með kláða sem hverfur aldrei „Erum enn að ná utan um allt sem gerðist“ Fréttatía vikunnar: EBU, aftaka og Love Island „Klukkan er fimm einhvers staðar“ „Þegar þið eignist ykkar fyrsta barn, má ég þá fá það?“ Snæddi með furstanum af Mónakó Kyssti ekki Maguire heldur tottaði rafrettu Allir og amma þeirra á Ítalíu Brúðkaupshátíð Taylor Swift og Travis Kelce hafin Bubbi, Herra og þeir allra rauðhærðustu á Írskum dögum Helga Þóra og Óli Sig ástfangin á Grikklandi Muniz skilinn Tveggja ára dóttir Nöru Smith með krabbamein Hvað veistu um… götur í Reykjavík sem byrja á S? „Mér var sagt að segja ekki eitt fokking orð“ Weinstein á spítala eftir hjartabilun Segir Depp hafa sturlast úr afbrýðissemi Kanada tekur þátt í Eurovision Erna Mist og Þorleifur Örn eignuðust son Leikarapar selur í 101 Grætti nánast alla í athöfninni „Fór fram úr mínum ýktustu björtustu vonum“ Logi fór á skeljarnar við Como-vatn Sjá meira