Þingmenn VG tortryggnir gagnvart áformum Nubos Þorbjörn Þórðarson skrifar 28. júlí 2012 13:42 Björn Valur Gíslason, formaður þingflokks Vinstri grænna.
Formaður þingflokks Vinstri grænna segir að almennt séu þingmenn flokksins tortryggnir í garð uppbyggingar Huang Nubo á Grímsstöðum á Fjöllum, ekki síst vegna misvísandi yfirlýsinga umboðsmanns hans hér á landi. Til stendur að félagið að Gáf ehf. í eigu sex sveitarfélaga kaupi jörðina Grímsstaði á Fjöllum af landeigendum og geri síðan langtímaleigusamning við félag Nubos gegn staðgreiðslu leiguverðsins. Þetta er háð því að iðnaðarráðuneytið samþykki umsókn félags Nubo um ívilnun vegna nýfjárfestingar á Íslandi, en samkvæmt lögum er iðnaðarráðherra heimilt fyrir hönd ríkisstjórnarinnar að gera samninga um aðkomu ríkisins vegna nýfjárfestinga. Ögmundur Jónasson, innanríkisráðherra, virðist líta svo á að ríkisstjórnin hafi í síðasta mánuði heimilað að samþykkja umsókn félags Nubos, en þá samþykkti ríkisstjórnin aðeins stofnun íslensks félags í eigu Nubo. Engin ákvörðun var hins vegar tekin um ívilnun á þessum ríkisstjórnarfundi og ráðherrar sem fréttastofan hefur náð tali af líta ekki svo á að ríkisstjórnin hafi veitt slíka heimild. Björn Valur Gíslason, formaður þingflokks Vinstri grænna, segir að málið hafi ekki verið rætt formlega í þingflokknum en þó sé nokkur anstaða við áformin.Yfirlýsingar talsmanns setja strik í reikninginn „Þetta hefur nú ekki verið rætt eða gerðar neinar samþykktir um þetta í þingflokknum með formlegum hætti en ég held að almennt séu þingmenn Vinstri grænna mjög tortryggnir í garð þessa verkefnis sérstaklega vegna þess hvað talsmaður þessa kínverska fyrirtækis hefur verið margsaga um framgang þess og þær hugmyndir sem eru uppi," segir Björn Valur, en þar er hann að vísa til Halldórs Jóhannssonar, sem er ráðgjafi Nubo hér á landi. Björn Valur segir það rétt að engin ákvörðun hafi verið tekin um að samþykkja umsókn félags Nubo um ívilnun vegna nýfjárfestinga og þannig samþykkja að veita félaginu undanþágu. „Það hefur engin undanþága verið veitt og engar fyrirætlanir um slíkt í undirbúningi. Það eina sem hefur gerst er að kínverska fyrirtækið hefur fengið heimild til að stofna félag hér á landi," segir Björn Valur en þar er hann að vísa til þess að ríkisstjórnin hafi fjallað um stofnun slíks félags í síðasta mánuði. Eins og komið hefur fram er umsókn félags í eigu Nubo um ívilnun vegna nýfjárfestinga óafgreidd í iðnaðarráðuneytinu, en þegar hefur nefnd, skipuð fulltrúum þriggja ráðuneyta á grundvelli laga um ívilnanir vegna nýfjárfestinga, mælt með því að umsóknin verði samþykkt af ráðherra. thorbjorn@stod2.is
Mest lesið Urðu vitni að því þegar maður var hálshöggvinn Innlent Kæra freyðivínsviðburð með Lilju Alfreðs Innlent Starfsfólk á flótta og traustið horfið Innlent „Seðlabankastjóri gat ekki sagt það skýrar“ Innlent Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Innlent Páll Edwald vill sæti á lista Miðflokksins Innlent Þyrla sótti skipverja sem fékk slitinn vír í bringuna Innlent „Þetta er sárara en tárum taki“ Innlent Eitt fórnarlamba Epsteins sagt búa á Íslandi Innlent Fyrrverandi eiginmaður Bidens ákærður fyrir morð Erlent Fleiri fréttir Aðeins eitt riðutilfelli allt síðasta ár Urðu vitni að því þegar maður var hálshöggvinn Páll Edwald vill sæti á lista Miðflokksins Kæra freyðivínsviðburð með Lilju Alfreðs „Seðlabankastjóri gat ekki sagt það skýrar“ Þyrla sótti skipverja sem fékk slitinn vír í bringuna Starfsfólk á flótta og traustið horfið Maður með leiðindi reyndist eftirlýstur af lögreglu Starfsfólk búið að yfirgefa barnið þegar faðir kom að sækja það á leikskólann Óheppileg tímasetning Þriggja bíla árekstur við Sprengisand „Þetta er sárara en tárum taki“ Reyndi að sækja gras en fékk gervigras Snúist ekki um að íbúar vilji ekki „fólk úr lægri stéttum“ í hverfið Yfir 60 leikskólastjórar komnir með nóg Hreindýratarfur kostar liðlega 240 þúsund krónur – svo er allt hitt Nafnlaus ábending upphaf skoðunar á starfsmönnum Bifrastar Enginn látist á þessu eða síðasta ári af völdum berkla Án rennandi vatns í á annan sólarhring Skapi óöryggi þegar lögregla sé allt í einu mætt á svæðið Fara ekki fram á gæsluvarðhald vegna slagsmála Lögregla að fá skýrari mynd af andláti konunnar Læknar kalla eftir sérstakri nefnd til að rannsaka alvarleg atvik Vara við svikasímtölum í nafni Sigríðar Bjarkar Breytingar hjá Viðreisn eftir afsögn Guðbrands Símafrí í grunnskólum Kópavogs Eins og að kasta kjarnorkusprengju inn í fjölskyldur Þjóðin klofin gagnvart ESB og fylgi við NATO á hreyfingu Breið samstaða á Alþingi og Miðflokkurinn aftur kominn um borð Berklasmitaður maður lést á Landspítalanum Sjá meira