Dýrast að synda í Kópavogi og í Árborg 14. febrúar 2012 16:18
Dýrast er að fara í sund í Kópavogi og í Árborg en ódýrast í Reykjanesbæ, það er að segja ef greitt er stakt gjald fyrir fullorðinn. Í fyrrnefndu bæjarfélögunum kostar 550 krónur að dýfa sér í laugina en í Reykjanesbæ kosntar það 370 krónur. Þarna munar tæpum 50 prósentum en þetta kemur fram í nýrri könnun verðlagseftirlits ASÍ sem kannaði verð og breytingar á gjaldskrám sundstaða hjá fimmtán stærstu sveitarfélögum landsins. „Sveitarfélögin sem skoðuð voru hafa hækkað gjaldið á stökum miða í sund fyrir fullorðna um 4-23%. Árskort fullorðinna hefur hækkað hjá 11 sveitarfélögum af 15 um 3-23%. Aðeins Reykjavík, Reykjanes, Árborg og Seltjarnarnes hafa ekki hækkað árskortið hjá sér. Hjá 10 sveitafélögum af 15 er greitt fyrir börn á grunnskólaaldri í sund." „Öll sveitarfélögin hafa hækkað hjá sér gjaldskrána á stakri sundferð milli ára. Mesta hækkunin er í Hafnarfirði um 32% eða úr 340 kr. í 450 kr. Minnsta hækkunin er á Akureyri 4%. Þar fer gjaldið úr 450 kr. í 470 kr. og á Ísafirði um 4% eða úr 490 kr. í 510 kr." ASÍ segir að til að spara sé mikilvægt að vera vel skipulagður og hugsa fram í tímann og kaupa afsláttarkort en í boði eru 10, 20, 30 miða kort, mánaðarkort, 6 mánaðakort og árskort. „Það er allt að 69% verðmunur á hæsta og lægsta verði fyrir 10 miða kort sem selt er hjá öllum sveitarfélögunum nema Akranesi. Hæsta gjaldið fyrir 10 miða kort er 4.400 kr. í Kópavogi en lægst er það á 2.600 kr. í Vestmannaeyjum." Nánar má kynna sér verðlagningu á sundstöðum hér.
Mest lesið Íslendingar handteknir á Spáni með mikið magn fíkniefna Innlent Lalli Johns er látinn Innlent „Þau ákváðu einfaldlega að hann væri minna fatlaður í Garðabæ“ Innlent Leysa upp samtökin og leggja niður vopn Erlent Hlýnandi veður og gæti farið í tuttugu stig á morgun Veður Láta bandarískan gísl lausan Erlent Kölluð út vegna viðskiptavinar með æsing Innlent Sker upp herör gegn kínverskum netrisum Innlent Íslenskur morðingi í Bandaríkjunum: „Gerðu það pabbi, ekki gleyma mér“ Innlent „Eiga sína síðustu daga í faðmi ástvina undir hamraslætti og múrborum“ Innlent Fleiri fréttir Langflestir telja stríð og átök það sem helst þjakar heiminn „Þau ákváðu einfaldlega að hann væri minna fatlaður í Garðabæ“ Kölluð út vegna viðskiptavinar með æsing Íslendingar handteknir á Spáni með mikið magn fíkniefna Lalli Johns er látinn Afnám virðisaukaskatts geti skilað björgunarsveitum fúlgum fjár Ein staða fornleifafræðings eftir á Þjóðminjasafninu Sker upp herör gegn kínverskum netrisum Aðgerðir gegn Temu og Shein, hraðbanki í hættu og þreyttir hlaupagarpar í beinni „Eiga sína síðustu daga í faðmi ástvina undir hamraslætti og múrborum“ Mótorhjólasamtök aðstoða börn sem hafa orðið fyrir ofbeldi Hækka þurfi veiðigjald í skrefum 230 íbúðir í byggingu í Þorlákshöfn Vopnahlé og í beinni frá Basel og Öskjuhlíð Björgunarsveitir vilja undanþágu frá virðisaukaskatti Gasa, veiðigjöld, gagnaleki og kolefni í Sprengisandi Starfsmaður verslunar sleginn Einn fluttur á sjúkrahús vegna reykeitrunar „Vandræðalegt“ að stjórnin hafi ekki mannað eigin þingfund Icelandair hættir rekstri stærstu flugvéla sinna Veittu eftirför í Árbæ Nýtt íslenskt hundaleikfang slær í gegn „Hreint og tært málþóf í sinni skýrustu mynd“ Veiðigjöld, vopnahlé og veðurblíða í bakgarðshlaupi Lengstu fyrstu umræðu í sögu Alþingis lokið Fundu, lögðu hald á og drápu snáka Efnahags- og viðskiptanefnd taki fyrir „tvöföldun á skatti“ Samningurinn nauðsynlegur og ekkert athugavert við hann Samningur saksóknara, þras á Alþingi og bakgarðshlaup í blíðunni Lögreglan á Suðurlandi rannsakar gagnastuldinn Sjá meira