Reglur um heimsóknir hertar á Litla Hrauni 27. apríl 2012 19:45
Reglur um heimsóknir á Litla-Hrauni hafa verið hertar til muna eftir að lögfræðingur varð uppvís að því að leyfa skjólstæðingi sínum í gæsluvarðhaldi að hringja. Formaður lögmannafélags Íslands segir slíka hegðun koma óorði á stéttina. Lögmenn verða nú að lúta sömu reglum og aðrir þegar þeir hitta skjólstæðinga sína innan fangelsisveggja og verður þeim hér eftir bannað að fara inn með farsíma eða tölvur og mega eiga von á að þurfa að gangast undir málmleit. Þá verða þeir sömuleiðis skyldugir til að framvísa skilríkjum og sanna að þeir séu verjendur umrædds fanga. Reglurnar voru hertar fyrir hálfum mánuði að gefnu tilefni samkvæmt upplýsingum frá fangelsismálastofnun sem vildi ekki fara nánar út í málið. Brynjar Níelsson, formaður lögfræðifélags Íslands segist hafa fengið þá skýringu að nokkrir lögmenn hafi misnotað þann trúnað sem þeir höfðu. Samkvæmt heimildum fréttastofu varð mælirinn fullur þegar lögfræðingur varð uppvís að því að leyfa skjólstæðingi sínum í gæsluvarðhaldi að hringja en þannig gat hann haft í hótunum við vitni. Brynjar segir að borið hafi á því að nokkrir verjendur hafi leyft skjólstæðingum að nýta síma sinn og tölvu og að grunsemdir hafi verið uppi um að þeir hafi farið með skilaboð á milli fanga í gæsluvarðhaldi. „Ég hef svo sem heyrt þetta og Fangelsismálastofnun segist hafa upplýsingar um þetta og að það hafi verið tilefni þessara reglna," segir Brynjar. „Auðvitað kemur það óorði á stéttina að nokkrir lögfræðingar skuli hafa misnotað þetta." „En auðvitað er þetta alltaf þannig í stórri stétt, fjölmennri stétt að einhver misnotað eitthvað sem kemur öðrum illa og kannski ímynd stéttarinnar," segir Brynjar. „Þetta er óþægileg atriði sem við þurfum að sjálfsögðu að ræða innan stéttarinnar."
Mest lesið Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Innlent Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla Innlent „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Innlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Fleiri fréttir Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Muni vitanlega gera kröfu um sæti í meirihluta Segir Miðflokkinn selja snákaolíu Ungi Íslendingurinn var nemandi í fallhlífaskóla „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Sjá meira