Viðmið um framboð varhugaverð 13. mars 2012 05:00 Lárus Ólafsson „
Það er margt til bóta í frumvarpinu en jafnframt margt í óvissu.“ Þetta segir Lárus Ólafsson, lögfræðingur hjá Samtökum verslunar og þjónustu, SVÞ, um frumvarp um breytingu á úthlutun tollkvóta á landbúnaðarvörum. „Okkur líst vel á að mat ráðherra varðandi kvóta sem heimilt er að bjóða út verður ekki jafnhuglægt og áður. Það er búið að binda niður verklagsreglur og ráðherra ber að fara að ráðum ráðgjafanefndar,“ tekur Lárus fram. Í frumvarpinu segir að framboð teljist ekki nægjanlegt sé viðkomandi vara ekki til stöðugrar dreifingar í að lágmarki 90 prósent magni af eftirspurn. Þetta eru varhugaverð viðmið, að mati Lárusar. „Í fyrsta lagi eru engar upplýsingar um hvernig þessi tala er fundin út. Okkur finnst þetta hár þröskuldur og hugsanlega ígildi tæknilegra hindrana.“ Samtök verslunar og þjónustu gera einnig athugasemdir við notkun ákveðinna gjaldeyrisviðmiða þegar um er að ræða tolla sem skylt er að bjóða út. „Tollarnir eru klæddir í magntolla en nota ákveðið gjaldeyrisviðmið. Þegar gengi krónunnar er óhagstætt verður svigrúmið minna til þess að bjóða í þessa kvóta. Svona framsetning kann að draga úr áhuga manna á þeim,“ segir Lárus. - ibs
Mest lesið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Erlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Innlent Fleiri fréttir Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Sjá meira