ESB blandar sér ekki í málefni iðnaðarráðuneytis 4. maí 2012 14:22
Oddný Harðardóttir settur iðnaðarráðherra segir að hvorki sendiherra ESB, né nokkur annar á vegum sambandsins, hafi blandað sér í málefni ráðuneytisins. Þetta er svar ráðherra við fyrirspurn sem Ásmundur Einar Daðason þingmaður Framsóknarflokksins lagði fram á Alþingi. Ásmundur vildi fá að heyra skoðun ráðherrans á því að „ESB, með fjármunum og þáttöku sendiherra og sendiráðs", hefði blandað sér með beinum hætti í umræður um áhrif ESB-aðildar á þá málaflokka sem undir ráðuneytið heyri. Ráðherrann segir að einu samskiptin við sendiráð ESB séu fundir sem haldnir eru tvisvar á ári með fulltrúum sendiráðsins til að ræða framvindu við þá kafla sem tengjast aðildarumsókninni og ráðuneytið ber ábyrgð á. „Þetta eru kaflar 15 um orkumál og 20 um iðnað og nýsköpun. Þá tekur ráðuneytið virkan þátt í vinnu við kafla 22 um byggðamálefni sem utanríkisráðuneyti er í forustu fyrir. Iðnaðarráðuneytið hefur með þátttöku sinni kynnst löggjöf ESB í þessum málaflokkum sem styrkt hefur faglegan grundvöll þess - til að takast á við dagleg störf, einkum sem tengjast tæknilegum atriðum við stefnumótun og áætlanagerð." Ásmundur Einar spurði einnig hvernig ráðherra hyggist „tryggja að starfsemi Evrópustofu og þeir fjármunir sem ESB ver til hennar, ásamt beinni þátttöku sendiherra og sendiráðs ESB, skekki ekki lýðræðislega umræðu um þá málaflokka sem heyra undir ráðuneytið." Þessu svaraði ráðuneytið á þann veg að það taki ekki þátt í pólitískri umræðu um ESB. „Það er mat ráðuneytisins að hin faglega vinna sem tengist aðildarumsókninni muni nýtast vel við að bæta verklag og dýpka þekkingu á málaflokkum ráðuneytisins - hvort sem af aðild verður eða ekki."
Mest lesið Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Erlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Innlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Innlent Enn má búast við slyddu eða snjókomu Veður „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Fleiri fréttir Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Sjá meira