Hundsa úrskurð ráðuneytisins Jón Hákon Halldórsson skrifar 14. mars 2012 21:32 Jóhann Hafstein segir ekkert annað að gera en að stefna Seltjarnarnesbæ.
Meirihluti bæjarstjórnar Seltjarnarness ákvað í dag að aðhafast ekkert vegna úrskurðar innanríkisráðuneytisins varðandi uppsögn Ólafs Melsted, fyrrverandi framkvæmdastjóra hjá Seltjarnarnesbæ, úr starfi. Ráðuneytið komst að þeirri niðurstöðu í síðasta mánuði að uppsögn Ólafs með niðurlagningu stöðu hans sem framkvæmdastjóri hafi brotið gegn sveitastjórnarlögum. Þá hafi bæjarstjórn Seltjarnarnesbæjar vanrækt þær skyldur sem hvíli á henni samkvæmt reglugerð um aðgerðir gegn einelti á vinnustað. Vanrækslan hafi falist í því að bæjarstjórnin brást aldrei við ásökunum Ólafs um meint einelti í sinn garð. Bæjarstjórnin hafi jafnframt brotið gegn stjórnsýslulögum þar sem hún vanrækti skyldu sína til að rannsaka málið með sjálfstæðum hætti. Jafnframt hafi Ásgerður Halldórsdóttir bæjarstjóri verið vanhæf til að fjalla um mál Ólafs og taka þátt í meðferð málsins. Hún hafi ekki vikið af fundum þrátt fyrir að henni hafi borið skylda til þess. Í bókun sem meirihluti sjálfstæðismanna í bæjarstjórn samþykkti á bæjarstjórnarfundi í dag segir að bærinn telji sig hafa fylgt lögum og reglum í hvívetna við niðurlagningu á starfi fyrrverandi framkvæmdastjóra bæjarfélagsins. Ekki verði því frekar aðhafast að svo stöddu vegna nýgengins úrskurðar innanríkisráðuneytisins. Jóhann Hafstein, lögmaður Ólafs, furðar sig á viðbrögðum bæjarstjórnarinnar við úrskurði innanríkisráðuneytisins. Hann bendir á að í fyrra hafi dómskvaddir matsmenn, sálfræðingar, úrskurðað að Ólafur Melsted hafi liðið einelti í starfi sínu. Bæjarstjórnin hafi ákveðið að bregðast ekkert við því. Þá hafi Persónuvernd jafnframt komist að því að Ásgerður Halldórsdóttir bæjarstjóri hafi brotið gegn Ólafi. „Nú blasir því við að höfða þarf mál á hendur Seltjarnarnesbæ, bæði vegna þess tjóns sem Ólafur hefur orðið fyrir sökum eineltis á vinnustað og einnig vegna ólögmætrar niðurlagningu stöðu hans sem framkvæmdastjóri hjá sveitarfélaginu," segir Jóhann Hafstein, lögmaður Ólafs.
Mest lesið „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Myndasyrpa: Síðasti kvöldfréttatími Sýnar Lífið Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Erlent Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Innlent Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Innlent Fleiri fréttir Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Tekjuáætlun verulega undir áætlun „Þetta mun auka enn á vald Ríkisútvarpsins“ Metfjöldi kvartana Ekkert ákveðið á fundinum: „Það væru fráleit viðbrögð við þessari niðurstöðu“ Þrjú ungmenni létust í bílslysinu á Krýsuvíkurvegi Skora á stjórnvöld að tryggja fasta viðveru þyrlu á Akureyri Reiðarslag fyrir fréttaflutning á Íslandi Gjaldtaka um nýjan Hornafjarðarveg hefst á morgun Dapurlegt að sjá á eftir kvöldfréttum Sýnar Fundur utanríkismálanefndar og ráðherra ræðir stöðu fjölmiðla Niðurskurður hjá Rúv upp á 10 til 15 stöðugildi Trausti nýr starfsmaður þingflokks Miðflokksins Alvarlegt slys á Krýsuvíkurvegi Sjá meira