Lyf við ristruflunum í fæðubótarefnum Svavar Hávarðsson skrifar 17. febrúar 2012 06:30 Fjölmargar tegundir fæðubótarefna eru seldar hérlendis. MAST varar fólk þó við vörum sem seldar eru í gegnum netið og geta reynst hættulegar falsanir. fréttablaðið/vilhelm
Matvælastofnun varar við inntöku fjölda fæðubótarefna þar sem þau innihalda virk efni gegn ristruflunum. Neysla þeirra getur verið hættuleg. Efnin eru aðgengileg á netinu en ekki hafa borist upplýsingar um sölu þeirra hér á landi. Matvælastofnun (MAST) hefur tvisvar á stuttum tíma sent frá sér tilkynningar þar sem varað er við fæðubótarefnum sem innihalda virk lyfjaefni sem karlar nota við ristruflunum. Á umbúðum fæðubótaefnanna er þess í engu getið að þau innihaldi virk lyfjaefni. Umræddar vörur eru ólöglegar til innflutnings og markaðssetningar. Fólk er hvatt til að kaupa ekki vörurnar eða neyta þeirra þar sem þær geta verið hættulegar heilsunni. Í lok janúar greindi MAST frá því að Spænska lyfjastofnunin (AEMPS) hafi greint virk lyfjaefni sem notuð eru við ristruflunum, í nokkrum fæðubótarefnum, án þess að þeirra sé getið í innihaldslýsingum varanna. MAST hafa nú borist upplýsingar frá AEMPS um fjórar vörur til viðbótar sem einnig innihalda slík lyfjaefni en upplýsingarnar berast í gegnum viðvörunarkerfi Lyfjastofnunar. Katrín Guðjónsdóttir, sérfræðingur hjá Matvælastofnun, segir að stofnunin hafi þegar gert heilbrigðiseftirliti sveitarfélaga viðvart um umræddar vörur, sem eru markaðssettar sem kynörvandi eða sem lausn við ristruflunum. „Við höfum ekki fengið upplýsingar um að þessar vörur séu seldar hér á landi. Við höfum enga ástæðu til að gruna að svo sé, þó að við getum aldrei verið viss.“ Katrín segir vörurnar í raun falsanir. „Þetta eru vörur þar sem framleiðanda er ekki einu sinni gefinn upp á umbúðunum. Það veit enginn hvaðan þetta kemur í rauninni, og það á við um þessar vörur. Þegar upp um þá kemst er oftast skipt um vöruheiti. Það eina sem við getum gert er að koma skilaboðum til neytenda og vara þá við,“ segir Katrín en allar vörurnar innihalda virk lyfjaefni; í flestum tilfellum þau sömu og finnast í lyfseðilsskyldum lyfjum eins og Viagra og Cialis. Katrín segir að fæðubótarefni séu sérstakt áhyggjuefni þegar kemur að málum sem þessum. „Við erum að sjá mikið af svona brotum og hitt er með fæðubótarefni sem eru leyfð í öðrum löndum en ekki hér á landi. Þess vegna erum við með innflutningseftirlit þó að varan sé í frjálsu flæði.“ Samkvæmt reglugerð um fæðubótarefni er innlendum framleiðanda/innflytjanda skylt að tilkynna innflutning eða markaðssetningu nýrra fæðubótarefna til MAST. Vörurnar allar eru, eða hafa verið, markaðssettar og seldar á netinu.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Innlent Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ Innlent Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Innlent Fleiri fréttir Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands „Konur upplifa ekki öryggi í íslensku samfélagi“ Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Mátti ekki arfleiða sambýliskonuna að séreigninni Dómsmálaráðherra boðar herta löggjöf í vændismálum Vændiskaupendur verði nafngreindir og þeim stungið í steininn Sjá meira