Svifdrekamaður barðist við hákarla í tvo daga 8. mars 2012 23:15 "Ég stakk þá í augun, trýnið og tálknin," sagði Lisewski. mynd/AFP
Pólskur svifdrekamaður barðist fyrir lífi sínu í tvo daga eftir að hann hrapaði yfir Rauðahafi. Hann háði grimma viðureign við hákarla sem sóttu að honum. Hinn 42 ára gamli Jan Lisewski hrapaði þegar hann reyndi að fljúga milli Egyptalands og Sádí-Arabíu. Hann átti aðeins þriðjung eftir af leiðinni þegar vindinum lægði og hann hrapaði í Rauðhafið. Það var tekið að dimma þegar Lisewski sendi neyðarskilaboð í gegnum GPS-staðsetningartæki. Það tók björgunarmenn þó 40 klukkustundir að hafa upp á honum. Lisewski pakkaði svifdrekanum saman og bjó til fleka - hann hugðist leggja sig þangað til að honum yrði bjargað. En hann áttaði sig fljótt á að hann var ekki einsamall. Ellefu hákarlar hringuðu flekann. Næstu klukkustundirnar barðist Lisewski við hákarlana. Að sögn Lisewski voru hákarlarnir rúmir fimm metrar að lengd. „Ég var með lítið prik. Ég stakk þá í augun, trýnið og tálknin," sagði Lisewski. Honum var á endanum bjargað og var vel á sig kominn að sögn björgunarmanna. „Áður en ég lagði af stað sagði bróðir minn mér að taka hníf meðferðis," sagði Lisewski. „Hann hefur líklega fengið fyrirboða."
Mest lesið Deildi nöfnum skjólstæðinga á Instagram Innlent Tvær íslenskar konur létust í umferðarslysinu í Suður-Afríku Innlent Það helsta úr fyrsta skammti Epstein-skjalanna Erlent „Að öllu óbreyttu mun þjóðvegurinn fara í sundur“ Innlent „Þetta er alveg ásættanlegur samningur“ Innlent Epstein-skjölin birt Erlent Pútín sagður hafa valið Witkoff Erlent Svona á að raða í uppþvottavélina Innlent „Við erum pottþétt að koma út í mínus, hversu miklum vitum við ekki“ Innlent Systir og amma drengs í meðferð létust í Suður-Afríku Innlent Fleiri fréttir Vilja dauðarefsingu af borðinu vegna hagsmunaáreksturs ráðherra Pútín sagður hafa valið Witkoff Gerðu umfangsmiklar árásir gegn ISIS í Sýrlandi Það helsta úr fyrsta skammti Epstein-skjalanna Epstein-skjölin birt Draga tilvist neðanjarðarhafs á Títan í efa Réðust á skip úr skuggaflotanum þúsundir kílómetra frá Úkraínu Enn fleiri myndir úr safni Epsteins: „En hún vill þúsund dali fyrir hverja stúlku“ Trump vill til tunglsins fyrir 2028 Herða reglur og ráðast í endurkaup á skotvopnum Morðinginn í Brown háskóla fannst látinn Evrópa samþykkir 90 milljarða evra lán til Úkraínu Rannsaka tengsl skotárásarinnar við annað morð Sex um borð í einkaþotu sem hrapaði Beita dómara ICC refsiaðgerðum vegna Ísrael Taka á kvenfyrirlitningu með sérstöku námskeiði fyrir drengi Hæðist að og smánar fyrrverandi forseta á „frægðargangi“ Frú Macron í klandri eftir ósmekkleg ummæli um femínista „Dr. Dauði“ í lífstíðarfangelsi fyrir að myrða tólf Ekki hafi verið rétt að benda á Skandia-manninn sem morðingja Palme Myndskeið birt af Reiner eftir morðin og fyrir handtöku Sér eftir að hafa ekki sagt Eli oftar hve heitt hann elskaði hann Segir „evrópsk svín“ vilja hagnast á falli Rússlands Auðgaðist ævintýralega á svikum og prettum Eldur í Tívolí Meina fólki frá fjölda ríkja að ferðast til Bandaríkjanna Nuddari gerði dóttur Reiner-hjónanna viðvart Bondi morðinginn formlega ákærður í 59 liðum Trump setur hafnbann á olíuskip á leið til og frá Venesúela Nick Reiner ákærður fyrir að myrða foreldra sína Sjá meira