Innlent

Síldin var ekki sýkt

Boði Logason skrifar
Ekki er vitað með vissu hvers vegna nokkur þúsund tonn af síld hreinlega synti upp í fjöru í Kolgrafafirði á Snæfellsnesi í gær. Rannsóknir sem framkvæmdar voru í dag sýna að engin sýking er í fisknum.

Þar var um klukkan tvö í gærdag sem Hafrannsóknarstofnun fékk tilkynningu um dauða síld í fjörborðinu í firðinum. Um leið var starfsmaður frá stofnuninni sendur á staðinn og kom hann á vettvang síðdegis. Við honum blasti þessi sjón.

Nokkur þúsund tonn af síld lá dauð í fjörunni og í sjávarmálinu sprikluðu fleiri fiskar. Starfsmenn Hafrannsóknarstofnunar hafa aldrei séð annað eins enda var veður eins og best verður á kosið á svæðinu í gær.

Sp. blm. Hefur svona gerst áður hér á landi?

„Ekki svo við vitum," segir Þorsteinn Sigurðsson, sviðstjóri hjá Hafrannsóknarstofnun. „Við höfum auðvitað heyrt um að fisk sem finnst á landi, oft í töluverðu magni. Það er ekki langt síðan að við heyrðum af síld við Suðurland. Loðnan gengur reglulega upp á land. Skýringarnar á þeim slóðum eru oft á þann veg að það sé vont veður. Þar sem fiskurinn er kominn á grunnt og brimið tekur hann. En það gerðist ekki í þessu tilfelli."

Nú vinna menn að því að finna út úr því hvað það var sem orsakaði þetta stórfurðulega atvik.

„Við höfum enga afgerandi skýringu. Það er þó ekki hægt að útiloka það sem heyrst hefur. Að þarna hafi hitastig hluta að máli."

Í morgun fór sérfræðingur frá Hafró á vettvang og tók sýni. Niðurstaða úr þeim lá fyrir síðdegis í dag en engin sýking var í fisknum.

„Það var ekkert að sjá á þessari síld. Þetta eru með fallegri sýnum sem við höfum séð."

Á morgun ætla starfsmenn Hafró að skoða botninn í firðinum og athuga hvort dauð síld liggi þar en nánari rannsókn mun fara fram strax eftir helgi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×