Innlent

Lögregluna grunar hverjir ollu eldsvoðanum

BBI skrifar
Lögreglan á Suðurnesjum hefur ákveðnar grunsemdir um hverjir voru að verki í nótt þegar kviknaði í átta bílum við iðnaðarhúsnæði í Reykjanesbæ. Málið er enn til rannsóknar.

„Það komu strax upp nokkur nöfn," segir lögreglumaður á vakt en tekur fram að ekki sé vitað með fullri vissu hverjir bera ábyrgð á eldsvoðanum.

Allt bendir til þess að bensínþjófar hafi verið á kreiki búnir rafvæddum dælubúnaði. Þegar þeir voru að dæla bensíni af bílaleigubílum sem stóðu þétt saman hafi skammhlaup orðið í tækjabúnaðnum með þeim afleiðingum að eldur hljóp í bílana.

„Þeir hafa ekki ráðið neitt við neitt og hlaupið af vettvangi," segir lögreglumaður á vakt og telur ólíklegt að mennirnir hafi ætlað sér að kveikja í.

Í eldsvoðanum gereyðilögðust fimm bílar en hinir þrír sem kviknaði í eru mikið skemmdir. „Það er mikil mildi að eldurinn barst ekki í aðra bíla á svæðinu. Það var gott að við komumst að þessu svona snemma," segir lögreglumaður á vakt, en bílarnir sem um ræðir stóðu við iðnaðarhúsnæði að Iðavöllum í Reykjanesbæ. Bílarnir stóðu þétt saman og eldurinn hefði auðveldlega getað borist í þá alla.


Tengdar fréttir

Bensínþjófar ollu eldsvoða

Átta bílar urðu eldi að bráð við Iðavelli í Keflavík um miðnætti þegar skammhlaup varð í dælubúnaði bensínþjófa sem þar voru á kreiki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×