Lífið

Hefur reglulega samband við fyrrverandi

Ben Affleck og Jennifer Lopez vöktu mikla athygli saman á sínum tíma.
Ben Affleck og Jennifer Lopez vöktu mikla athygli saman á sínum tíma.
Fyrrverandi Hollywood parið Ben Affleck og Jennifer Lopez sem oft voru kölluð Bennifer hættu saman fyrir tæpum áratug eftir dramatískt samband. Engu að síður halda þau góðu sambandi enn í dag. Affleck sagði frá því í nýlegu viðtali að þau tækju reglulega púlsinn hvort á öðru í gegnum tölvupóst.

Sagði hann einnig að samband þeirra í dag væri ekki þess eðlis að þau leituð til hvors annars eftir ráðum og þess háttar heldur eingöngu þess eðlis að þau hrósuðu hvort öðru fyrir vel unnin verkefni, flotta plötu eða bíómynd. „Ég ber mikla virðingu fyrir henni og samgleðst henni með allt sem hún tekur sér fyrir hendur."

Ben Affleck gekk að eiga leikkonuna Jennifer Garner i og á með henni þrjú börn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.