Innlent

Komast með hundruð milljarða úr landi þrátt fyrir höft

Magnús Halldórsson skrifar
Heiðar Már Guðjónsson hagfræðingur segir stjórnvöld á Íslandi ekki átta sig á alvarleika þess, fái erlendir vogunarsjóðir að komast með mörg hundruð milljarða úr þrotabúum gömlu bankanna. Þetta sé mismunun, þar sem sjóðirnir séu að fá að taka fé úr íslenska kerfinu meðan gjaldeyrishöft eru í gildi.

Eins og greint var frá í fréttum Stöðvar 2 á þriðjudaginn þá er unnið hörðum höndum að því að klára nauðasamninga við kröfuhafa, sem eiga kröfu í bú Glitnis og Kaupþings. Samningarnir verða að óbreyttu kláraðir á næstum vikum en greiðslur til kröfuhafa geta þó að líkindum ekki farið fram fyrr en í byrjun næsta árs.

Lagt er upp með það að reiðufé búanna í erlendri mynt, sem er yfir 700 milljarðar króna, verði greitt út til kröfuhafa, en stærstur hluti þeirra eru erlendir vogunar- og skuldabréfasjóðir. Heiðar Már Guðjónsson hagfræðinu segir nauðasamningana um margt einkennilega.

„Þetta er virkilega stórt mál og skiptir öllu upp á hvernig gengur komandi misseri og ár. Mér þykja stjórnvöld ekki skilja eða bera skynbragð á alvarleika málsins."

Heiðar Már segir að erlendir vogunarsjóðir séu að fara fá mörg hundruð milljarða í erlendum gjaldeyri, á grundvelli undaþágu frá gjaldeyrishöftum, þrátt fyrir að þeir hafi fjárfest í kröfum sínum eftir hrunið, eftir að höftin voru sett á.

„Þeir vissu af neyðarlögunum og vissu af gjaldeyrishöftunum en fjárfestu engu að síður á Íslandi. Þessi aðilar sitja núna allir ásamt ríkisstjórn Íslands og Seðlabankanum við eitt borð. Það á að leyfa einum þessara aðila að standa upp frá borðinu og hirða alla bestu bitana með sér á leiðinni út. Það skilur hina eftir í súpunni."

Og Heiðar Már segir að í hans huga kom aðeins eitt til greina.

„Það þarf auðvitað að fresta nauðarsamingur. Það er ekki hægt að skrifa slíka samninga út frá þeirri forsendu að erlendir aðilar séu rétthærri en aðrir aðilar — að þeir megi taka verðmæti úr landi, að þeir séu undanþegnir höftum sem aðrir þurfa að búa við."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×