Lífið

Orðrómurinn staðfestur

Þá er orðrómurinn staðfestur. Robert Pattinson og Kristen Stewart eru tekin saman á ný.

People Magazine hefur það nú eftir nokkrum heimildarmönnum og nákomnum vinum fyrrverandi Twilight parsins að það sé tekið saman á ný.

Parið hittist í Los Angeles í síðasta mánuði til að ræða málin eftir framhjáhald Stewart með leikstjóranum Rupert Sanders.

Virðist parið hafa fundið ástina á ný og í kjölfarið ákvað Pattinson að hætta við að selja heimili þeirra eins og hann hafði ákveðið.

Aðdáendur parsins bíða nú í ofvæni eftir því að ný mynd náist af þeim Pattinson og Stewart saman en pressan vestan hafs spái því að það muni ekki gerast fyrr en á rauða dreglinum á frumsýningu Breaking Dawn 2 síðar í þessum mánuði.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.